Íþrótta-og tómstundanefnd - 53. fundur - 23. nóvember 2005

Á fundinum voru: Bryndís Birgisdóttir, formaður, Jón Hálfdán Pétursson, Jóna Benediktsdóttir, Jón Björnsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Gunnar Þórðarson frkvstj. HSV .Sturla Páll Sturluson og Guðríður Sigurðardóttir


Jón Björnsson ritaði fundargerð.

Þetta var gert:


1. Afmælishátíð íþróttafélagsins Stefnis.



Bryndís Birgisdóttir kynnti nefndinni að íþróttafélagið Stefnir eigi 100 ára afmæli á komandi ári. Rætt var um gjöf til félagsins.


Ákvörðun frestað til næsta fundar



2. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2006.



Lokaumræður fóru fram um fjárhagsáætlun fyrir árið 2006.



3. Líkamsrækt á Suðureyri.



Fram var lagt bréf dagsett 16. nóvember 2005, frá áhugahópi um kaup á líkamsræktartækjum í íþróttahúsið á Suðureyri, undirritað af Einari Ómarssyni.


Óskað er eftir því að fá að setja tækin upp í íþróttasalnum og jafnfram styrk til að fjármagna kaupin að hluta.


Samþykkt var að heimila uppsetningu tækjanna en óskað eftir nánari útfærslu á rekstri og heildarfjármögnum á tækjakaupunum.



4. Skautasvell á Ísafirði.



Lagt var fram bréf dagsett 21.11.2005, frá Dóru Hlín Gísladóttur, þar sem hún spyrst fyrir um hvort möguleiki sé á því að sett verði upp skautasvell einhversstaðar á Ísafirði.


Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að kanna möguleika á að búa til skautasvell og svara bréfritara.



5. Önnur mál.



  1. Samskipti við íþróttafélög.

    Í framhaldi af kynningu á framtíðarnefnd HVS, frá síðasta fundi, leggur nefndin til að unnið verði samkvæmt tillögum framtíðarnefndarinnar um samskipti við íþróttafélögin.



  2. Opnunartími sundlaugar og íþróttahúss á Suðureyri

    Ákveðið var að opnunartími í íþróttasalnum á Suðureyri verði sá sami og opnunartími sundlaugar. Umsjónarmaður hússins hefur þó heimild til þess að víkja út frá þeim tíma ef þurfa þykir, ekki síst á lokunardegi sundlaugar.



  3. Vígsla íþróttahússins á Suðureyri.

    Dagskrá vígxluhátíðar íþróttahússins á Suðureyri sem haldin verður 26. nóvember n.k. kynnt fyrir fundarmönnum.



  4. Frístundamiðstöð Ísafjarðarbæjar.

    Íþrótta- og tómstundarfulltrúi lagði til að skrifstofa fulltrúans ásamt þeim öðrum skrifstofum sem tengjast beint starfi hans verði nefndar Frístundamiðstöð í bókunum og símaskrá .



  5. Bréf frá hestamannafélaginu Hendingu.

Kynnt var efni bréfs frá Hestamannafélaginu Hendingu á Ísafirði, dagsett 16. nóv. 2005, þar sem óskað er eftir styrk til námskeiðshalds sumarið 2006.


Lagt fram til kynningar.


Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:15




Bryndís Birgisdóttir, formaður.


Jón Hálfdán Pétursson. Jóna Benediktsdóttir.


Gunnar Þórðarson. Jón Björnsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi.


Sturla Páll Sturluson. Guðríður Sigurðardóttir.



Er hægt að bæta efnið á síðunni?