Íþrótta-og tómstundanefnd - 106. fundur - 3. júní 2009

Mætt voru: Guðný Stefanía Stefánsdóttir, formaður, Þórdís Jakobsdóttir, Stella Hjaltadóttir og Svava Rán Valgeirsdóttir. Ingólfur Þorleifsson boðaði forföll og mætti Hafdís Gunnarsdóttir í hans stað. Margrét Halldórsdóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi Ísafjarðarbæjar og Kristján Þór Kristjánsson sátu einnig fundinn.


Fundargerð ritaði Margrét Halldórsdóttir.





Þetta var gert:



1. Samþykktir 69. íþróttaþings ÍSÍ. - 2009-05-0023.


Lögð fram ályktun frá ÍSÍ, dagsett 17.-18. apríl.


Lagt fram til kynningar.



2. Skólahreysti 2009. ? 2009-05-0025.


Lagt fram  bréf dagsett maí 2009 frá Andrési Guðmundssyni, þar sem farið er fram á styrk vegna Skólahreysti 2009.


Nefndin leggur til við bæjarráð, í ljósi þess hversu mikið forvarnargildi verkefnið hefur, að það verði styrkt.



3. Rampasvæði á Ísafirði- undirskriftalistar. ? 2009-05-0063.


Lagt fram bréf dagsett 19. maí 2009 auk undirskriftalista þar sem farið er fram á að fá rampasvæði á Ísafirði.


Nefndin fagnar frumkvæði þessara ungu manna og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að athuga kostnað við að setja upp rampasvæði.



Önnur mál


1. 17. Júní 2009. ? 2009-05-0062.



Undirbúningur hátíðarhaldanna ræddur.


Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt.  Fundi slitið klukkan kl.17:05.


Guðný Stefanía Stefánsdóttir.


Þórdís Jakobsdóttir.


Hafdís Gunnarsdóttir.


Stella Hjaltadóttir.


Svava Rán Valgeirsdóttir.


Margrét Halldórsdóttir.


Kristján Þór Kristjánsson.



Er hægt að bæta efnið á síðunni?