Íþrótta - 165. fundur - 20. janúar 2016

 Dagskrá:

1.  

Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2015 - 2016010011

 

Nefndin velur íþróttamann Ísafjarðarbæjar 2015 og efnilegasta íþróttamann ársins. Valið verður tilkynnt við athöfn sunnudaginn 24. janúar kl. 16:00 á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði.

 

   

2.  

Uppbyggingarsamningar við íþróttafélög - 2015020007

 

Rætt um fyrirkomulag uppbyggingarsamninga við íþróttafélög.

 

Íþrótta- og tómstundanefnd vekur athygli á að allar góðar og vel skilgreindar hugmyndir íþróttafélaga um uppbyggingarverkefni verða teknar til skoðunar með það að marki að uppbyggingarsamningar takist. Þannig er úthlutað fé á fjárhagsáætlun til þessara verkefna ekki pottur sem sækja þarf í heldur markast fjárútlát hverju sinni af þeim samningum sem hafa tekist. Forsenda þess að af samningi verði er að framlög annarra en sveitarfélags séu umtalsverð og verkefnið hljóti samþykki bæjarstjórnar.

 

   

3.  

Uppbyggingarsamningar við íþróttafélög - 2015020007

 

Lögð fram ósk frá SFÍ um áframhaldandi uppbyggingarsamning við sveitarfélagið. Erindinu var frestað á síðasta fundi nefndarinnar.

 

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.

 

   

4.  

Aðstaða til inniklifuræfinga á Ísafirði - 2015090069

 

Lagt fram erindi Ólivers Hilmarssonar, dags. 15. janúar, fyrir hönd áhugahóps um klifuraðstöðu á Ísafirði varðandi möguleika á að nýta hluta efri hæðar Vallarhússins á Torfnesi undir klifurvegg.

 

Nefndin óskar eftir áliti HSV um framtíðarnýtingu efri hæðar hússins. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

 

   

5.  

Beiðni Golfklúbbs Ísafjarðar um nýtingu Sundhallarloftsins til frambúðar - 2016010037

 

Lagður er fram tölvupóstur Sigríðar Láru Gunnlaugsdóttur, f.h. HSV frá 14. janúar sl., ásamt beiðni Kristínar Hálfdánsdóttur, f.h. Golfklúbbs Ísafjarðar, dags. 13. janúar sl., um afnot af Sundhallarloftinu til frambúðar.

 

Íþrótta- og tómstundanefnd telur að ekki sé hægt að úthluta húsnæðinu til frambúðar að svo stöddu og leggur til við bæjarstjórn að erindinu verði hafnað.

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00

 

 

Kristján Andri Guðjónsson

 

Jón Ottó Gunnarsson

Sif Huld Albertsdóttir

 

Þórir Karlsson

Guðrún Margrét Karlsdóttir

 

Gísli Halldór Halldórsson

Hálfdán Bjarki Hálfdánsson

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?