Fræðslunefnd - 339. fundur - 18. desember 2013

Mættur áheyrnarfulltrúi fyrir tónlistarskólamál: Hulda Bragadóttir, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Ísafjarðar. Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir grunnskólamál: Elfar Reynisson og Edda Graichen, fulltrúar kennara. Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, fulltrúi skólastjóra, og Gunnhildur Björk Elíasdóttir, fulltrúi foreldra, mættu ekki og engin í þeirra stað.

Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir leikskólamál: Helga Björk Jóhannsdóttir, fulltrúi skólastjóra og Sif Huld Albertsdóttir, fulltrúi foreldra.

 

Dagskrá:

1.

2013120028 - Úthlutunarlíkan og samstarfssamningur

 

Lagt fram úthlutunarlíkan á kennslustundum og stöðugildum fyrir Tónlistarskóla Ísafjarðar.

 

Sviðsstjóra skóla - og tómstundasviðs falið að vinna áfram að málinu.

 

   

2.

2013110021 - Umsókn um styrk vegna heimsóknar erlendra gesta

 

Lagt fram bréf, ódagsett, þar sem gerð er grein fyrir kostnaði vegna heimsóknar til GÍ 22.-26. apríl 2014. Málið var áður tekið fyrir á 338. fundi fræðslunefndar.

 

Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að styrkumsóknin verði samþykkt.

 

   

3.

2013120025 - Eyrarskjól-Hjallastefnan

 

Lagt fram bréf, dagsett 4. desember 2013, frá Guðríði Guðmundsdóttur, leikskólastjóra Eyrarskjóls, þar sem óskað er eftir að Eyrarskjól muni annaðhvort starfa í anda Hjallastefnunnar eða fara alla leið og að Hjallastefnan ehf. taki við rekstri skólans.

 

Fræðslunefnd leggur til að skoðað verði að Hjallastefnan ehf. taki við rekstri Eyrarskjóls.

 

   

4.

2013120026 - Foreldrakönnun 2013

 

Lagðar fram niðurstöður úr könnun sem lögð var fyrir foreldra barna í leikskólunum Sólborg og Eyrarskjóli í nóvember 2013.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

5.

2013060033 - Fjárhagsáætlun 2014

 

Lagt fram bréf, dagsett 16. desember 2013 frá Sigurlínu Jónasdóttur, skóla- og sérkennslufulltrúa, þar sem rætt er um aukagjald sem leikskólastjórar hafa verið að setja á ef foreldrar eru ekki að virða vistunartíma barnsins ítrekað. Gjaldið er núna 1.484 kr. á mánuði.

 

Fræðslunefnd leggur til að að gjaldið verði 1.000 kr. og lagt á í hvert sinn sem vistunartíminn er ekki virtur.

 

   

 6. 2013090040 - Ósk um að ráða starfsmann á Eyrarskjól.

Málið var áður á dagskrá á 336. fundi fræðslunefndar og þá var samþykkt að að Eyrarskjól fengi 0,75 stöðugildi og átti að endurskoða ákvörðunina um áramót.

Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, fór yfir málið aftur og leggur fræðslunefnd til að stöðugildið verði áfram.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17.50

 

 

Gísli Halldór Halldórsson

 

Helga Dóra Kristjánsdóttir

Auður Helga Ólafsdóttir

 

Benedikt Bjarnason

Hólmfríður Vala Svavarsdóttir

 

Sigurlína Jónasdóttir

Margrét Halldórsdóttir

 

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?