Fræðslunefnd - 331. fundur - 17. apríl 2013

Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir grunnskólamál: Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, fulltrúi skólastjóra, Edda Graichen og Elfar Reynisson, fulltrúar kennara og Gunnhildur Björk Elíasdóttir, fulltrúi foreldra.

Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir leikskólamál: Guðríður Guðmundsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra og Sif Huld Albertsdóttir, fulltrúi foreldra.

 

Dagskrá:

1.

2013040029 - Ósk um breytingar á skóladgatali.

 

Lagt fram bréf dagsett 5. apríl 2013 frá Gunnlaugi Dan Ólafssyni, skólastjóra Grunnskólans á Þingeyri, þar sem óskað er eftir að fá að flýta skólaslitum grunnskólans um einn dag, þ.e. að þau verði 31. maí í stað 1. júní 2013.

 

Fræðslunefnd samþykkir breytingarnar á skóladagatali Grunnskólans á Þingeyri.

 

   

2.

2012030049 - Fréttabréf.

 

Lagt fram fréttabréf Grunnskólans á Ísafirði fyrir marsmánuð 2013.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

3.

2012030090 - Grunnskólinn á Ísafirði 2012-2013.

 

Lögð fram drög af teikningum af skólalóð Grunnskólans á Ísafirði.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

4.

2013020050 - Skýrslur grunnskóla 2013.

 

Lögð fram drög að könnun fyrir kennara Grunnskólans á Ísafirði í framhaldi af niðurstöðum úr innra mati sem þar var gert.

 

Fræðslunefnd samþykkir að könnunin verði send út til kennara Grunnskólans á Ísafirði.

 

   

5.

2013040027 - Umsókn um fleiri klukkustundir fyrir starfsmannafundi.

 

Lagt fram bréf dagsett 4. apríl 2013 frá leikskólastjórum í Ísafjarðarbæ, þar sem óskað er eftir aukningu á klukkustundum til starfsfunda í leikskólunum.

 

Fræðslunefnd telur nauðsynlegt að erindið verði samþykkt og óskar eftir áliti bæjarráðs.

 

   

6.

2013030002 - Ósk um niðurgreiðslu vegna barns, sem er á biðlista eftir leikskólaplássi á Ísafirði.

 

Lögð fram drög að reglum frá Margréti Halldórsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs og Sigurlínu Jónasdóttur, skóla- og daggæslufulltrúa, um reglur vegna niðurgreiðslu daggjalda barna sem orðin eru 18  mánaða og fá ekki pláss í sínum heimaleikskóla, en nýta sér pláss á meðan í öðrum leikskóla í sveitarfélaginu.

 

,,Stefna Ísafjarðarbæjar í leikskólamálum er að veita öllum börnum frá 18 mánaða aldri leikskólapláss. Sé ekki mögulegt að koma barni að í einhverjum þeirra heimaskóla,  en foreldrar vilja nýta sér pláss í öðrum skólum (sé þar laust pláss) er möguleiki á að fá greiddan akstursstyrk sem nemur kr. 20.000 á mánuði meðan beðið er eftir leikskólaplássi í heimaskóla. Upphæðin helst í hendur við þá   auka niðurgreiðslu sem fæst ef foreldrar eru  áfram með börn hjá dagforeldrum eftir að 18 mánaða aldri er náð.“

 

 

Fræðslunefnd samþykkir tillöguna.

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17.10.

 

 

Auður Helga Ólafsdóttir

 

Ólöf Hildur Gísladóttir

Gísli Halldór Halldórsson

 

Sigurlína Jónasdóttir

Margrét Halldórsdóttir

 

Guðrún Íris Hreinsdóttir

Magnús Reynir Guðmundsson

 

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?