Félagsmálanefnd - 378. fundur - 21. maí 2013

Dagskrá:

1.

2013050031 - Sumarþjónusta við fötluð börn 2013.

 

Lögð fram greinargerð Hörpu Stefánsdóttur dags. 21. maí 2013, þar sem gerð er grein fyrir sumarþjónustu við fötluð börn sumarið 2013. Sumarþjónustan rúmast innan fjárhagsáætlunar 2013.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

2.

2013050030 - Úttektar- og úrbótaáætlun fyrir Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks.

 

Lögð fram skýrsla Capacent dags. 11. desember 2012, þar sem greint er frá niðurstöðum úttektar og kynnt úrbótaáætlun fyrir BsVest.

 

Skýrsla lögð fram til kynningar og umræður.

 

   

3.

2013050033 - Reglur um niðurgreiðslu kostnaðar vegna sálfræðitíma.

 

Lögð fram drög að reglum Ísafjarðarbæjar um niðurgreiðslu kostnaðar vegna sálfræðitíma.

 

Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar, sem verði endurskoðaðar í lok janúar ár hvert.

 

   

4.

2013050032 - Félagsskýrslur 2013.

 

Lögð fram skýrsla um félagsþjónustu fyrir árið 2012. Skýrslan tekur til fjárhagsaðstoðar, heimaþjónustu og daggæslu barna á einkaheimilum.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

5.

2012010026 - Þjónustuíbúðir á Tjörn, Þingeyri.

 

Sædís María Jónatansdóttir greindi frá því að Heilbrigðisstofnun Vestfjarða hefur hætt við sumarlokun á Tjörn á Þingeyri og því er ekki þörf á að ráða starfsfólk í vöktun á öryggiskerfi.

 

Til kynningar.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00.

 

 

Guðfinna M Hreiðarsdóttir

 

Jón Reynir Sigurðsson

Gunnar Þórðarson

 

Ari Klængur Jónsson

Rannveig Þorvaldsdóttir

 

Anna Valgerður Einarsdóttir

Harpa Stefánsdóttir

 

Sædís María Jónatansdóttir

 

 

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?