Félagsmálanefnd - 312. fundur - 14. maí 2008

Mætt voru: Gísli H. Halldórsson, formaður, Rannveig Þorvaldsdóttir, Hrefna R. Magnúsdóttir, Ásthildur Gestsdóttir og  Elín Halldóra Friðriksdóttir. Jafnframt sátu fundinn Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu og Guðný Steingrímsdóttir og Sædís María Jónatansdóttir, starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu.  Sædís María Jónatansdóttir ritaði fundargerð.



Þetta var gert:


1. Liðveisla sumarið 2008.   2003-03-0106



Sóley Guðmundsdóttir boðaði forföll en í hennar stað mætti Harpa Stefánsdóttir. Rætt um liðveislu fyrir börn sumarið 2008 og um aukna samvinnu Svæðisskrifstofu málaefna fatlaðra á Vestfjörðum og Ísafjarðarbæjar. Félagsmálanefnd felur starfsmönnum að kanna framkomnar hugmyndir um samstarf.



2. Trúnaðarmál


Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálamöppu félagsmálanefndar.



3. Tjörn.      2005-05-0005


Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar lýsir ánægju sinni með þá ákvörðun Heilbrigðisstofnunarinnar Ísafjarðarbæ að hætta við sumarlokun á Tjörn á Þingeyri.



4. Stefnumótun félagsmálanefndar.  2007-12-0001


Unnið að stefnumótun félagsmálanefndar Ísafjarðarbæjar.





Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 17:55.





Gísli H. Halldórsson, formaður.


Elín Halldóra Friðriksdóttir.


Rannveig Þorvaldsdóttir.


Hrefna R. Magnúsdóttir.


Ásthildur Gestsdóttir.


Sædís María Jónatansdóttir, ráðgjafi. 


Guðný Steingrímsdóttir, félagsráðgjafi.



Er hægt að bæta efnið á síðunni?