Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 121. fundur - 4. apríl 2012

Dagskrá:

 

1.

2012010059 - Trúnaðarmál

 

Trúnaðarmál.

 

Fjögur trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók barnaverndarnefndar.

 

   

2.

2012010060 - Sískráning í barnavernd

 

Lagt fram yfirlit yfir sískráningu barnaverndartilkynninga í janúar, febrúar og mars 2012. Í janúar bárust 16 tilkynningar, 23 í febrúar og 10 í mars.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

3.

2011080017 - Barnaverndarstofa - Ýmis erindi 2011-2012

 

Lögð fram drög að reglugerð um skólagöngu fósturbarna ásamt tölvupósti dags. 20. mars 2012 frá Guðjóni Bjarnasyni sálfræðingi á Barnaverndarstofu.

 

Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum lýsir sig ánægða með framkomin drög og hefur ekki athugasemdir við þau.

 

   

4.

2011080017 - Barnaverndarstofa - Ýmis erindi 2011-2012

 

Lagt fram bréf frá Barnaverndarstofu dags. 8. febrúar 2012 þar sem stofan minnir á að barnaverndarnefndir skulu fyrir 1. maí ár hvert skila samtölueyðublaði sbr. 8. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

 

5.

2011080017 - Barnaverndarstofa - Ýmis erindi 2011-2012

 

Lagt fram afrit af bréfi Barnaverndarstofu dags. 15. febrúar 2012 til Lex lögmannsstofu varðandi samning fyrirtækisins Let´s go e.V. við Barnaverndarstofu um vistun barna. Barnaverndarstofa hefur haft áhyggjur af framkvæmd vistunar á vegum fyrirtækisins og hyggst ekki gera áframhaldandi samning við það.

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30

 

Rósa Helga Ingólfsdóttir, formaður.

Bryndís G Friðgeirsdóttir.

Barði Ingibjartsson.

Þóra Hansdóttir.

Anna Valgerður Einarsdóttir.

Sædís María Jónatansdóttir.

Kristrún Helga Ólafsdóttir.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?