Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
527. fundur 01. febrúar 2024 kl. 17:00 - 17:38 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir aðalmaður
  • Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Hjördís Þráinsdóttir skjalastjóri
Fundargerð ritaði: Hjördís Þráinsdóttir skjalastjóri
Dagskrá

1.Húsnæðisáætlun 2024 - 2024010204

Tillaga frá 1271. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 29. janúar 2024, um að bæjarstjórn samþykki Húsnæðisáætlun Ísafjarðarbæjar 2024.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Jóhann Birkir Helgason, Kristján Þór Kristjánsson og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Bygging verknámshúss við MÍ - aðkoma sveitarfélaga - 2024010066

Tillaga bæjarstjóra um að bæjarstjórn samþykki að taka þátt í verkefni um byggingu nýs verknámshúss við Menntaskólann á Ísafirði.

Samningur og frekari gögn um fjármögnun og hlut Ísafjarðarbæjar verður lagður fram til samþykkis á síðari stigum
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri, Jóhann Birkir Helgason og Kristján Þór Kristjánsson.

Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, leggur fram eftirfarandi bókun.

„Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar fagnar áformum um byggingu verknámshús við Menntaskólann á Ísafirði. Það er mikilvægur þáttur í að efla alla Vestfirði og gera ungu fólki kleift að sækja iðnmenntun stutt frá heimahögunum. Í ljósi þess að við sjáum fram á mikla uppbyggingu á svæðinu er þetta þýðingarmikið fyrir framtíð Vestfjarða.“


Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Umsókn um lóð við Sundabakka - Þrymur - 2022090020

Tillaga frá 1271. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 29. janúar 2024, um að bæjarstjórn samþykki viljayfirlýsingu við Þrym hf. um lóðaúthlutun til hafnsækinnar starfsemi.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Jóhann Birkir Helgason og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar sameining nefnda 2023 - 2023120013

Tillaga frá 1271. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 29. janúar 2024, um að bæjarstjórn taki til nýrrar síðari umræðu og samþykki breytingar á samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, varðandi kosningar og tilnefningar í nefndir og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Samþykkt um öldungaráð - 2022030030

Tillaga frá 1271. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 29. janúar 2024, um að bæjarstjórn samþykki breytingar á samþykkt um öldungaráð.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Gjaldskrár 2024 - Félagsheimilið á Flateyri - 2023040034

Lögð fram til samþykktar gjaldskrá 2024 vegna útleigu Félagsheimilisins á Flateyri.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Garðahús á Görðum í Aðalvík L189021. Ósk um stofnun lóðar - 2024010015

Tillaga frá 624. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 25. janúar 2024, um að bæjarstjórn heimili stofnun lóðar úr landi Garða undir Garðahús F-225 0458, að Sæbóli í Aðalvík.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Suðurtangi 6, Ísafirði. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2021120014

Tillaga frá 624. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 25. janúar 2024, um að bæjarstjórn samþykki útgáfu lóðarleigusamnings vegna Suðurtanga 6 á Ísafirði.

Nefndin leggur áherslu á aðgengi að sjó, um upptökuramp, fyrir kajaka og minni báta, verði tryggt eins og fram kemur í gildandi deiliskipulagi.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Fjarðargata 4, Þingeyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2023120088

Tillaga frá 624. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 25. janúar 2024, um að bæjarstjórn samþykki útgáfu lóðarleigusamnings vegna Fjarðargötu 4 á Þingeyri.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Hrunastígur 1, Þingeyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2024010148

Tillaga frá 624. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 25. janúar 2024, um að bæjarstjórn samþykki útgáfu lóðarleigusamnings vegna Hrunastígs 1 á Þingeyri.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Bæjarráð - 1270 - 2401011F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1270. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 22. janúar 2024. Fundargerðin er í sex liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

12.Bæjarráð - 1271 - 2401016F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1271. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 29. janúar 2024. Fundargerðin er í 15 liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

13.Hafnarstjórn - 249 - 2401013F

Lögð fram til kynningar fundargerð 249. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 26. janúar 2024. Fundargerðin er í einum lið.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Jóhann Birkir Helgason og Kristján Þór Kristjánsson.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

14.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 624 - 2401008F

Lögð fram til kynningar fundargerð 624. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 25. janúar 2024. Fundargerðin er í níu liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:38.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?