Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
525. fundur 21. desember 2023 kl. 17:00 - 18:10 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Þorbjörn Halldór Jóhannesson varamaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Finney Rakel Árnadóttir varamaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Guðmundur Ólafsson varamaður
  • Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Álagningarhlutfall útsvars 2024 - 2023090094

Tillaga frá 1267. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 18. desember 2023, um að bæjarstjórn hækki álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 um 0,23%, þannig að álagningarhlutfallið verði 14,97%, í samræmi við samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga, undirritað þann 15. desember 2023, um breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk, en hlutfall tekjuskatts lækkað samhliða á móti.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar - sameining nefnda 2023 - 2023120013

Forseti leggur fram til síðari umræðu og samþykktar breytingu á samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 525/2021, ásamt síðari breytingum, vegna sameiningar fræðslunefndar og íþrótta- og tómstundanefndar í eina nefnd, skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd, auk annarra minniháttar breytinga á 48. gr. samþykktarinnar.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Samþykkt um meðhöndlun úrgangs 2022 - 2022110123

Forseti leggur fram til síðari umræðu og samþykktar uppfærða samþykkt um meðhöndlun úrgangs, vegna breytinga á forsendum skrefagjalds, en um er að ræða breytingu á 4. mgr. 8. gr. samþykktarinnar.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, Jóhann Birkir Helgason og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Nefndarmenn 2022-2026 - velferðarnefnd - 2022050135

Tillaga Jóhanns Birkis Helgasonar, oddvita D-lista Sjálfstæðisflokks, um að Dagný Finnbjörnsdóttir verði kosin aðalfulltrúi D-lista í velferðarnefnd, í stað Eyþórs Bjarnasonar, og að Eyþór Bjarnason verði kosinn varafulltrúi í stað Dagnýjar í nefndinni.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Sameining fræðslunefndar og íþrótta- og tómstundanefndar - 2023110108

Forseti leggur fram tillögu um kjör eftirfarandi fulltrúa í nýja nefnd, skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd, sem tekur til starfa á nýju ári:

Finney Rakel Árnadóttir, Í-listi, formaður,
Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir, Í-listi, varaformaður,
Þórir Guðmundsson, Í-listi, aðalfulltrúi,
Eyþór Bjarnason, D-listi, aðalfulltrúi,
Elísabet Samúelsdóttir, B-listi, aðalfulltrúi,

Magnús Einar Magnússon, Í-listi, varafulltrúi,
Jónína Eyja Þórðardóttir, Í-listi, varafulltrúi,
Wojciech Wielgosz, Í-listi, varafulltrúi,
Steinunn Guðný Einarsdóttir, D-listi, varafulltrúi,
Halldór Karl Valsson, B-listi, varafulltrúi.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, og Finney Rakel Árnadóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Málefni leikskóla 2023 - starfshópur - 2023090036

Forseti leggur fram tillögu um samþykkt uppfærðs erindisbréfs starfshóps um málefni leikskóla, en ekki er talin þörf á skipun varamanna í starfshópinn.

Þá leggur forseti fram tillögu um kjör eftirfarandi fulltrúa í stafshóp um málefni leikskóla, sem tekur til starfa á nýju ári:

Finney Rakel Árnadóttir, bæjarfulltrúi,
Nanný Arna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi,
Helga Björk Jóhannsdóttir, leikskólastjórnandi,
Hildur Sólmundsdóttir, leikskólakennari,
Sigríður Brynja Friðriksdóttir, fulltrúi ófaglærðra starfsmanna.



Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, Kristján Þór Kristjánsson, Arna Lára Jónsdóttir Steinunn Guðný Einarsdóttir og Arna Lára Jónsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Reglur um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar-, sumarhúsa- og atvinnuhúsnæði og samþykkt Ísafjarðarbæjar um gatnagerðargjald, stofngjald vatnsveitu og stofngjald fráveitu. - 2022010144

Tillaga frá 622. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 18. desember 2023, um að bæjarstjórn samþykki breytingar á samþykkt Ísafjarðarbæjar um gatnagerðargjald, stofngjald vatnsveitu og stofngjald fráveitu nr. 1355/2023, sbr. 10. gr., auk þess að samþykkja breytingar á reglum um úthlutun lóða, sbr. regla 3.4.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, Jóhann Birkir Helgason og Arna Lára Jónsdóttir.

Forseti gerir fundahlé kl. 17.25 þar sem uppfæra þarf gögn fyrir fundinn.
Fundi fram haldið kl. 17.30.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Undanþágur verkfallsheimilda 2024 - 2023100156

Tillaga frá 1267. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 18. desember 2023, um að bæjarstjórn samþykki minnisblað mannauðsstjóra um lista yfir þá starfsmenn sem ekki hafa verkfallsheimild.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Fjölnota knattspyrnuhús á Ísafirði - viðauki 19 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2023 - 2020040001

Tillaga frá 1266. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 11. desember 2023, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 19 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2023.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 0,-
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er neikvæð kr. 22.000.000,- og lækkar því rekstrarafgangur í kr. 38.000.000,-
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0,- og rekstrarafgangur því óbreyttur í kr. 278.000.000,-
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Fab lab smiðja í MÍ - beiðni um samstarf - viðauki 20 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2023 - 2023060085

Tillaga frá forseta um að bæjarstjórn samþykki viðauka 20 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2023.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 3.900.000.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er neikvæð kr. 3.900.000,- og lækkar því rekstrarafgangur í kr. 34.100.000,-
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er neikvæð kr. 3.900.000,- og lækkar rekstrarafgangur því í kr. 274.100.000,-
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, og Arna Lára Jónsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2020-2032 - 2020070011

Tillaga frá bæjarstjóra um að samkomulag verði gert við Arkís arkitekta um að slíta samstarfi vegna endurskoðunar Aðalskipulags Ísafjarðarbæjar 2020-2032, í samræmi við minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 15. desember 2023.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, Jóhann Birkir Helgason, Arna Lára Jónsdóttir, Kristján Þór Kristjánsson, Arna Lára Jónsdóttir og Steinunn Guðný Einarsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 8-0.
Jóhann Birkir Helgason sat hjá við atkvæðagreiðslu.

12.Leigusamningur um geymsluhúsnæði Sindragötu 11, 2. hæð fyrir Safnahús í framkvæmdum - 2023030082

Tillaga bæjarráðs frá 1266. fundi, sem haldinn var 11. desember 2023, um að bæjarstjórn samþykki húsaleigusamning um Sindragötu 11 á Ísafirði, fyrir héraðsskjalasafn, ljósmyndasafn og listasafn, til 10 ára, auk minnisblaðs Bryndísar Óskar Jónsdóttur, bæjarritara, dags. 8. desember 2023, vegna málsins.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, Jóhann Birkir Helgason, Arna Lára Jónsdóttir, Jóhann Birkir Helgason, Arna Lára Jónsdóttir, Kristján Þór Kristjánsson og Arna Lára Jónsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt með fimm atkvæðum fulltrúa Í-lista.
Tveir fulltrúar framsóknarflokks sátu hjá.
Tveir fulltrúar sjálfstæðisflokks greiddu atkvæði gegn tillögunni.

13.Byggðakvóti fiskveiðiárið 2023/2024 - 2023120011

Tillaga frá 1267. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 18. desember 2023, um að bæjarstjórn samþykki framlagðar sérreglur byggðakvóta fyrir Ísafjarðarbæ 2023/2024.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, og Arna Lára Jónsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

14.Svæðisskipulag vestfirskra sveitarfélaga - 2022110080

Tillaga frá 1266. fundi bæjarráðs, þann 11. desember 2023, um að bæjarstjórn staðfesti starfsreglur svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða, sem fjallað hefur verið og og samþykktar hjá Skipulagsstofnun.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

15.Suðurtangi 10 (áður 8), Ísafirði. Lóðarréttindi - 2021120015

Tillaga frá 621. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 4. desember 2023, um að bæjarstjórn samþykki viðauka við lóðarleigusamning frá 2012 vegna Suðurtanga 10 (áður 8) vegna breytinga á lóðarmörkum vegna gatnagerðar við Suðurtanga.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

16.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Æðartangi 6 - Flokkur 1, - 2023010230

Tillaga frá 1267. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 18. desember 2023, um að bæjarstjórn samþykki framsal á byggingarétti Vestfirskra verktaka ehf. til Skeiðs ehf. fyrir Æðartanga 6 á Ísafirði.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

17.Skeið 8, 400. Umsókn um lóð - 2023020033

Tillaga frá 1267. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 18. desember 2023, um að bæjarstjórn samþykki framsal á byggingarétti Vestfirskra verktaka ehf. til Skeiðs ehf. fyrir Skeið 8 á Ísafirði, með þeim skilyrðum að áfallinn kostnaður verði greiddur fyrir gildistöku framsalsins.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

18.Brimbrjótur, Suðureyri, iðnaðar- og athafnasvæði B20 - 2019120040

Tillaga frá 622. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 18. desember 2023, um að bæjarstjórn samþykki breytingar á lið a) í viðauka samnings „framkvæmdir við 1. áfanga, sbr. teikningu í viðauka I, skulu hefjast eigi síðar en 1. september 2024 og vera lokið eigi síðar en 30. september 2026.“
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

19.Gramsverslun. Ósk um breytingu á deiliskipulagi á Þingeyri - 2023080072

Tillaga frá 622. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 18. desember 2023, um að bæjarstjórn samþykki að heimila málsmeðferð skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

20.Fífutunga 4, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2023120073

Tillaga frá 622. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 18. desember 2023, um að bæjarstjórn samþykki að Jóni Steinari Guðmundssyni verði úthlutað lóðinni við Fífutungu 4, Ísafirði skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.
Fylgiskjöl:

21.Reykjanes, Súðavík. Ósk um stofnun lóða við Reykjanes 11 og 13 - 2023120039

Tillaga frá 622. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 18. desember 2023, um að bæjarstjórn heimili stofnun lóðar úr landi Ísafjarðarbæjar L141585 í Súðavíkurhreppi, við Reykjanes, undir tvær nýjar lóðir.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, og Jóhann Birkir Helgason.

Jóhann Birkir Helgason vék af fundi vegna vanhæfis kl. 18:04.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

Jóhann Birkir kom aftur til fundarins kl. 18.05.

22.Fundir bæjarstjórnar 2022-2026 - 2022050136

Tillaga forseta um að næsti reglulegi fundur bæjarstjórnar, þann 4. janúar 2024, falli niður, með vísan til 8. gr. bæjarmálasamþykktar, enda má gera ráð fyrir að engin mál verði til afgreiðslu, þar sem nefndastörf liggja niðri milli hátíðanna.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

23.Bæjarráð - 1266 - 2312010F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1266. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 11. desember 2023.

Fundargerðin er í ellefu liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Lagt fram til kynningar.

24.Bæjarráð - 1267 - 2312013F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1267. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 18. desember 2023.

Fundargerðin er í 16 liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Lagt fram til kynningar.

25.Fræðslunefnd - 461 - 2311020F

Lögð fram til kynningar fundargerð 461. fundar fræðslunefndar, en fundur var haldinn 14. desember 2023.

Fundargerðin er í fimm liðum.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, og Finney Rakel Árnadóttir.

Lagt fram til kynningar.

26.Íþrótta- og tómstundanefnd - 248 - 2312003F

Lögð fram til kynningar fundargerð 248. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 6. desember 2023.

Fundargerðin er í einum lið.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Lagt fram til kynningar.

27.Sameinuð almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps - 39 - 2312009F

Lögð fram til kynningar fundargerð 39. fundar sameinaðrar almannavarnanefndar Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps, en fundur var haldinn 12. desember 2023.

Fundargerðin er í sjö liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Lagt fram til kynningar.

28.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 622 - 2312008F

Lögð fram til kynningar fundargerð 622. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 18. desember 2023.

Fundargerðin er í 17 liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Lagt fram til kynningar.

29.Velferðarnefnd - 475 - 2312002F

Lögð fram til kynningar fundargerð 275. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 7. desember 2023.

Fundargerðin er í sex liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:10.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?