Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
520. fundur 05. október 2023 kl. 17:00 - 18:10 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Dagný Finnbjörnsdóttir varamaður
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir aðalmaður
  • Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Álagningarhlutfall útsvars 2024 - 2023090094

Tillaga frá 1256. fundi bæjarráðs, sem var haldinn 25. september 2023, um að bæjarstjórn samþykki óbreytt útsvar 2024 14,74%.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Gjaldskrár 2024 - 2023040034

Bæjarstjóri leggur fram til samþykktar gjaldskrár Ísafjarðarbæjar 2024, en um er að ræða eftirfarandi gjaldskrár:
- Söfn
- Skipulagsbreytingar og framkvæmdaleyfi
- Gatnagerðargjöld og byggingarleyfisgjöld
- Slökkvilið
- Leikskólar og dagforeldrar
- Skólamatur
- Dægradvöl
- Skíðasvæði
- Sundlaugar, líkamsrækt og íþróttahús
- Grunnskólar, leigu- og þjónustugjöld
- Skóla- og tómstundasvið, útseld vinna
- Fráveita
- Sorpgjöld
- Vatnsveita
- Dýrahald
- Áhaldahús
- Tjaldsvæði
- Skrúður
- Velferðarsvið
- Félagslegt húsnæði
- Höfn

Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, Kristján Þór Kristjánsson, Gylfi Ólafsson, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Steinunn Guðný Einarsdóttir, Arna Lára Jónsdóttir og Elísabet Samúelsdóttir.

Forseti ber tillögu um samþykkt allra gjaldskráa upp til atkvæða.

Allar gjaldskrár samþykktar 9-0.

3.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 10 - 2023010091

Tillaga frá 1255. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 18. september 2023, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 10 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2023, vegna greiðslu vegna notkunar skóla Ísafjarðarbæjar á Fab Lab smiðju árið 2022, alls að fjárhæð kr. 4.932.000. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 0, en fjármunir verða nýttir vegna endurgreiðslu lögfræðikostnaðar vegna Óbyggðanefndar á árinu 2023.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 0
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er 0,- og er því rekstrarafgangur óbreyttur í kr. 79.500.000
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0- og því rekstrarafgangur óbreyttur kr. 238.500.000
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Kristján Þór Kristjánsson og Arna Lára Jónsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 11 - 2023010091

Tillaga frá 1257. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 2. október 2023, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 11 við fjárhagsáætlun 2023 vegna framlengingar verkefnastjórastöðu á Flateyri, en áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er 5.000.000,- og lækkar því rekstrarafgangur í kr. 74.500.000. Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 5.000.000- og lækkar því rekstrarafgangur í kr. 233.500.000.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 12 - 2023010091

Tillaga frá 244. fundi hafnarstjórnar um að bæjarstjórn samþykki viðauka 12 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2023, vegna lífeyrisskuldbindinga hafnarsjóðs.

Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er jákvæð kr. 4.700.000,- og hækkar því rekstrarafgangur í kr. 79.200.000.

Áhrif viðaukans á samantekinn A og B hluta er kr. 0- og er því rekstrarafgangur óbreyttur í kr. 233.500.000,-
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2023 - viðauki 13 - 2023010091

Tillaga frá bæjarstjóra um að bæjarstjórn samþykki viðauka 13 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2023, vegna tilfærslu á framkvæmdum ársins 2023, hvað varðar verkefnin gervigras á Torfnesi, innanhúslýsing íþróttahússins á Torfnesi, ofanflóðavarnir á Flateyri, framkvæmdir við gamla gæsló og hreystitækjagarð á Ísafirði, og breytingar á endurnýjum vatnslagna í Staðardal og hreinsimannvirkja fráveitu á Flateyri og Suðureyri.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 0,-
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0,- og rekstrarafgangur því óbreyttur í kr. 79.200.000,-
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0,- og rekstrarafgangur því óbreyttur í kr. 233.500.000,-
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson, Arna Lára Jónsdóttir, Kristján Þór Kristjánsson, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Endurskoðun á umgengnisreglum í íþróttamannvirkjum Ísafjarðabæjar - 2023010106

Tillaga frá 243. fundi íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 6. september 2023, um að bæjarstjórn samþykki uppfærðar umgengnisreglur í íþróttamannvirkjum Ísafjarðarbæjar. Nefndin hvetur HSV til að kynna uppfærðar reglur vel fyrir íþróttafélögum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Endurskoðun innkaupareglna Ísafjarðarbæjar - 2017050075

Tillaga frá 1255. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 18. september 2023, um að bæjarastjórn samþykki uppfærðar innkaupareglur Ísafjarðarbæjar, með innkaupastefnu Ísafjarðarbæjar frá 2020.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Uppfærðar reglur um notkun byggðarmerkis Ísafjarðarbæjar - 2023060145

Tillaga frá 169. fundi menningarmálanefndar, sem haldinn var 18. september 2023, um að bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykki uppfærðar reglur um notkun byggðarmerkis Ísafjarðarbæjar.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Aðgerðaáætlun menningarstefnu Ísafjarðarbæjar - 2022100090

Tillaga frá 169. fundi menningarmálanefndar, þann 18. september 2023, um að bæjarstjórn samþykki aðgerðaáætlun menningarmála fyrir árið 2024, byggt á menningarstefnu Ísafjarðarbæjar. Nefndin leggur sérstaklega áherslu á að setja þurfi á fót stöðugildi menningarfulltrúa eigi aðgerðaráætlunin að ganga eftir, en gert er ráð fyrir 50%. stöðugildi.

Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti gerir breytingatillögu um að tillögum í aðgerðaáætlun með menningarstefnu verði vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.

Forseti bar breytingatillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Hlaupahátíð á Vestfjörðum 2023 - 2023060040

Tillaga frá 1257. fundi bæjarráðs, þann 2. október 2023, um að bæjarstjórn samþykki styrktarsamning við Riddara Rósu vegna Hlaupahátíðar Vestfjarða fyrir árin 2024-2026.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

12.Ból Ísafjarðarbæ. Nýtt deiliskipulag - 2022110039

Tillaga frá 616. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 28. september 2023, um að bæjarstjórn heimili auglýsingu deiliskipulags fyrir Selakirkjuból I í samræmi við ákvæði 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

13.Stefnisgata 6 og Smiðjustígur 2, Suðureyri. Umsókn um lóðir - 2023070098

Tillaga frá 616. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 28. september 2023, um að bæjarstjórn heimili breytingu á deiliskipulagi Suðureyrarmala, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, en nefndin telur ekki þörf á grenndarkynningu enda breyting óveruleg.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

14.Bæjarráð - 1257 - 2309029F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1257. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 3. október 2023.

Fundargerðin er í 16 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

15.Bæjarráð - 1256 - 2309027F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1256. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 25. september 2023.

Fundargerðin er í 13 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

16.Bæjarráð - 1255 - 2309015F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1255. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 18. september 2023.

Fundargerðin er í 13 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

17.Fræðslunefnd - 458 - 2309025F

Lögð fram til kynningar fundargerð 458. fundar fræðslunefndar, en fundur var haldinn 28. september 2023.

Fundargerðin er í fjórum liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

18.Fræðslunefnd - 457 - 2309016F

Lögð fram til kynningar fundargerð 457. fundar fræðslunefndar, en fundur var haldinn 21. september 2023.

Fundargerðin er í þremur liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

19.Hafnarstjórn - 244 - 2309030F

Lögð fram til kynningar fundargerð 244. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 3. október 2023.

Fundargerðin er í fjórum liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

20.Íþrótta- og tómstundanefnd - 245 - 2309028F

Lögð fram til kynningar fundargerð 245. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 27. september 2023.

Fundargerðin er í einum lið.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

21.Íþrótta- og tómstundanefnd - 244 - 2309007F

Lögð fram til kynningar fundargerð 244. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 20. september 2023.

Fundargerðin er í þremur liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

22.Menningarmálanefnd - 169 - 2309018F

Lögð fram til kynningar fundargerð 169. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 18. september 2023.

Fundargerðin er í átta liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

23.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 616 - 2309021F

Lögð fram til kynningar fundargerð 616. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 28. september 2023.

Fundargerðin er í sjö liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

24.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 137 - 2309024F

Lögð fram til kynningar fundargerð 137. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 29. september 2023.

Fundargerðin er í fjórum liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Lagt fram til kynningar.

25.Velferðarnefnd - 473 - 2309022F

Lögð fram til kynningar fundargerð 473. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 27. september 2023.

Fundargerðin er í fimm liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:10.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?