Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
513. fundur 18. apríl 2023 kl. 17:00 - 18:11 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Aðalsteinn Egill Traustason varamaður
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
  • Dagný Finnbjörnsdóttir varamaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir aðalmaður
  • Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Hjördís Þráinsdóttir skjalastjóri
Fundargerð ritaði: Hjördís Þráinsdóttir skjalastjóri
Dagskrá
Forseti leggur fram tillögu þess efnis að samþykkt verði að taka tvö mál inn á dagskrá bæjarstjórnar með afbrigðum, með heimild í 16. gr. bæjarmálasamþykktar.

Fyrst er um er að ræða 8. mál af 1238. fundi bæjarráðs sem haldinn var 17. apríl 2023, um að bæjarstjórn samþykki breytingar á 2. mgr. 7. gr. hafnargjaldskrár varðandi farþegagjöld. Málið yrði nr. 10 á dagskrá bæjarstjórnar og númer fundarliða sem á eftir koma breytast í samræmi við það.
Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.

Næst er um er að ræða 9. mál af 1238. fundi bæjarráðs sem haldinn var 17. apríl 2023, um að taka af dagskrá bæjarstjórnar mál nr. 11, um samning við Hjallastefnuna um rekstur Eyrarskjóls, þar sem niðurstaða samningsumræðna er ekki ljós.
Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.

1.Nefndarmenn 2022-2026 - fræðslunefnd - 2022050135

Tillaga Jóhanns Birkis Helgasonar, oddvita D-lista Sjálfstæðisflokks, um að Dagný Finnbjörnsdóttir verði kosin aðalmaður D-lista í fræðslunefnd, í stað Steinunnar Guðnýjar Einarsdóttur. Jafnframt að Steinunn Guðný Einarsdóttir verði kosin varamaður D-lista í fræðslunefnd, í stað Þóru Marýjar Arnórsdóttur.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Nefndarmenn 2022-2026 - skipulags- og mannvirkjanefnd - 2022050135

Tillaga Jóhanns Birkis Helgasonar, oddvita D-lista Sjálfstæðisflokks, um að Steinunn Guðný Einarsdóttir verði kosin aðalmaður D-lista í skipulags- og mannvirkjanefnd, í stað Aðalsteins Egils Traustasonar. Jafnframt að Þóra Marý Arnórsdóttir verði kosin varamaður D-lista í skipulags- og mannvirkjanefnd, í stað Steinunnar Guðnýjar Einarsdóttur.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Nefndarmenn 2022-2026 - umhverfis- og framkvæmdanefnd - 2022050135

Tillaga Jóhanns Birkis Helgasonar, oddvita D-lista Sjálfstæðisflokks, um að Þóra Marý Arnórsdóttir verði kosin aðalmaður D-lista í í umhverfis- og framkvæmdanefnd, í stað Dagnýjar Finnbjörnsdóttur.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Torfnes - Gervigras útboð 2023 - 2022120019

Tillaga frá 1236. fundi bæjarráðs, þann 27. mars 2023, um að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi sviðsmynd varðandi uppbyggingu gervigrasvallar á Ísafirði, byggt á kostnaðarmati úr minnisblaði sviðsstjóra og að bæjarstjóra verði falið að bjóða verkið út:

„Jarðvinna og viðgerðir á drenlögnum á æfingavelli, nýtt Fifa Quality gras á æfingavöll, ásamt staðsteyptum gúmmípúða og REPDM innfyllingu, og förgun eldra grass.

Jarðvinna og drenglagnir á æfingavöll. Fifa Quality gras á aðalvöll, ásamt staðsteyptum gúmmipúða og REPDM innfyllingu.

Jafnframt er gert ráð fyrir hönnun á undirstöðum og lagnaleiðum fyrir ljósamöstur við aðalvöll.“
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson, Kristján Þór Kristjánsson og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Kristján Þór Kristjánsson leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd Framsóknarflokks:
„Bætt knattspyrnuaðstaða hefur verið baráttumál Framsóknar síðustu ár og sér nú til sólar í þeim efnum. Ágætrar samstöðu hefur gætt í bæjastjórn um málið og fólk unnið að verkefninu af heilindum. Hlustað hefur verið á athugasemdir Framsóknar og þá sérstaklega um að færa hluta af fjármagni til ársins 2023 sem gerir það að verkum að gervigras verður komið á fyrir sumarið 2024. Framsókn hefur einnig beitt sér fyrir því að sett verði gervigras á báða velli þar sem núverandi gervigras er löngu orðið ónýtt og mikilvægt að setja á báða velli. Hægt verður að stjórna álagi á grasið betur og allir iðkendur ungir sem eldri æfa við sömu aðstæður. Framsókn telur að miðað við þessa tillögu og núverandi fjárhagsáætlun náist ásættanlegt aðstaða til næstu ára. Gervigras á báða velli ásamt nýjum drenlögnum. Mikilvægt er að ná inn í verkið hönnun á undirstöðum og lagnaleiðum fyrir ljósmöstur á aðalvöll svo auðveldara verði að koma því upp í nánustu framtíð. Framsókn telur jafnfram að nauðsynlegt sé að róa öllum árum að því að bætt verði inn í verkið vökvunarkerfi. Vökvunarkerfi er góð fjárfesting sem lengir endingatíma gervigras og er því spurning hvort sparnaður á því að sleppa vökvunarkerfi muni í raun skila sér til lengri tíma.
Framsókn hvetur Ísafjarðarbæ til að vera í góðum samskiptum við knattspyrnuhreyfinguna við vinnu útboðs og annað tengt verkefninu.“

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Slökkvistöð - staðarvalsgreining - 2022050186

Tillaga frá 1236. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 27. mars 2023, um að bæjarstjórn samþykki að gera ráð fyrir byggingu nýrrar slökkvistöðvar í nýju skipulagi á Suðurtanga, en fyrirhugað er að hefjast handa árið 2029, skv. núgildandi framkvæmdaáætlun.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Reglur Ísafjarðarbæjar um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka - 2023030087

Tillaga frá 1236. fundi bæjarráðs, þann 27. mars 2023, um að bæjarstjórn samþykki nýjar reglur Ísafjarðarbæjar um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Björgunarfélag Ísafjarðar - samstarfssamningur - 2017120003

Tillaga frá 1236. fundi bæjarráðs, sem fram fór 27. mars 2023, um að bæjarstjórn samþykki nýjan þjónustusamning við Björgunarfélag Ísafjarðar, sem gildir frá 1. janúar 2023 til 31. desember 2027.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Kirkjubólsland - beiðni um niðurfellingu gatnagerðargjalda - 2023020129

Tillaga frá 1237. fundi bæjarráðs, þann 3. apríl 2023, um að bæjarstjórn samþykki að veita 30% afslátt af gatnagerðargjöldum til Aðstöðunnar sf. við byggingu iðnaðarhúsnæðis á Kirkjubólslandi, L138012, með vísan til 6. gr. laga nr. 153/2006, um gatnagerðargjald, um sérstaka lækkunarheimild, en bæjarráð telur að bygging fasteignar í Engidal sé á svæði sem hefur sætt lítilli ásókn undanfarin ár, auk þess að vera á hættumatssvæði B, þ.e. fasteign með takmarkaðri viðveru.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Gjaldskrár 2023 - Höfn - 2022050015

Tillaga frá 240. fundi hafnarstjórnar, sem haldinn var 12. apríl 2023, um að bæjarstjórn samþykki uppfærða gjaldskrá hafna Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2023, þar sem bryggjugjöld 2023 verði eftirfarandi:

0-15 brt: 9,3 kr.
15-30 brt: 11,7 kr.
>30: 11,7 kr.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti og Magnús Einar Magnússon.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Gjaldskrár 2023 - 2022050015

Mál sem tekið var inn með afbrigðum.

Tillaga 1238. fundar bæjarráðs Ísafjarðarbæjar um að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi breytingatillögu á 2. mgr. 7. gr. hafnargjaldskrár varðandi farþegagjöld:

„Farþegagjald skal greiða af hverjum farþega ferðaþjónustubáta og skemmtiferðaskipa. Gjaldið er kr. 205. Skipstjóri, umboðsmaður eða eigandi farþegaskips skal afhenda hafnaryfirvöldum upplýsingar um farþegafjölda til innheimtu gjaldsins. Skipstjórar, umboðsmenn eða eigendur þeirra báta sem stunda reglubundna farþegaflutninga skulu skila upplýsingum um farþegafjölda hverrar ferðar mánaðarlega og skal upplýsingum skilað eigi síðar en 3. hvers mánaðar fyrir næstliðinn mánuð. Skili ofangreindir aðilar ekki upplýsingum um farþegafjölda er heimilt að áætla fjölda farþega fyrir viðkomandi tímabil eða leggja á 25% álag ef skil á farþegatölum dragast umfram 20 daga.“
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Fyrirstöðugarður - Suðurtangi og Norðurtangi - viðauki 4 við fjárhagsáætlun - 2023040012

Tillaga frá 240. fundi hafnarstjórnar, þann 12. apríl 2023, um að bæjarstjórn samþykki að byggður verði 140 metra fyrirstöðugarður við Sundabakka, auk þess að samþykkja viðauka B við fjárhagsáætlun skv. gögnum málsins, sem yrði viðauki 4 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2023.

Er því lagður fram til samþykktar viðauki 4, vegna málsins, sem gerir grein fyrir nettóaukningu framkvæmdaáætlunar kr. 135.000.000 og er lagt til að því verði mætt með lántöku fyrir Hafnarsjóð.

Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, Nanný Arna Guðmundsdóttir og Kristján Þór Kristjánsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.
Aðalsteinn Egill Traustason víkur af fundi undir umræðum um lið 12, kl 17:42.

12.Brimbrjótur, Suðureyri - umsókn um lóð fyrir atvinnuhúsnæði - 2019120040

Tillaga frá 606. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 13. apríl 2023, um að bæjarstjórn samþykki breytingar á lið a. í viðauka samnings um áætlaðan framkvæmdatíma við Brjótinn á Suðureyri, nefnt iðnaðar- og athafnasvæði B20 í Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, á þann hátt að framkvæmdir við fyrsta áfanga, sbr. teikningu í viðauka I, skulu hefjast eigi síðar en 1. janúar 2024 og vera lokið eigi síðar en 30. apríl 2026, í stað þess að framkvæmdir eigi að hefjast eigi síðar en 1. maí 2023, og vera lokið eigi síðar en 30. apríl 2026, eins og núverandi samningur kveður á um.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 8-0.
Aðalsteinn kemur aftur til fundar kl 17:43.

13.Sætún 9 á Ísafirði. Viðauki við lóðarleigusamning - 2023020112

Tillaga frá 606. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 13. apríl 2023, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Sætún 9 á Ísafirði.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

14.Engjavegur 28 L138199, 400. Umsókn um gerð lóðarleigusamnings - 2023030111

Tillaga frá 606. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 13. apríl 2023, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings við Engjaveg 28 á Ísafirði.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

15.Skipagata 1, Suðureyri. Umsókn um lóð - 2023040019

Tillaga frá 606. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 13. apríl 2023, um að bæjarstjórn samþykki að úthluta Nostalgíu ehf. lóðinni við Skipagötu 1, Suðureyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

16.Stefnisgata 10, Suðureyri. Umsókn um lóð - 2023040020

Tillaga frá 606. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 13. apríl 2023, um að bæjarstjórn samþykki að úthluta Nostalgíu ehf. lóðinni við Stefnisgötu 10, Suðureyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

17.Bæjarráð - 1236 - 2303019F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1236. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 27. mars 2023.

Fundargerðin er í ellefu liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti og Gylfi Ólafsson.

Lagt fram til kynningar.

18.Bæjarráð - 1237 - 2303024F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1237. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 3. apríl 2023.

Fundargerðin er í fjórum liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

19.Fræðslunefnd - 451 - 2303022F

Lögð fram til kynningar fundargerð 451. fundar fræðuslunefndar, en fundur var haldinn 13. apríl 2023.

Fundargerðin er í fjórum liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, Elísabet Samúelsdóttir, Kristján Þór Kristjánsson, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Gylfi Ólafsson, Magnús Einar Magnússon, varaforseti, og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir.

Magnús Einar Magnússon, varaforseti, tekur við stjórn fundarins kl. 18:08 svo Sigríður Júlía Brynleifsdóttir geti tekið til máls.

Sigríður Júlía Brynleifsdóttir tekur aftur við stjórn fundarins kl. 18:09.

Lagt fram til kynningar.

20.Hafnarstjórn - 240 - 2304001F

Lögð fram til kynningar fundargerð 240. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 12. apríl 2023.

Fundargerðin er í fjórum liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

21.Íþrótta- og tómstundanefnd - 240 - 2303025F

Lögð fram til kynningar fundargerð 240. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 5. apríl 2023.

Fundargerðin er í fimm liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

22.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 606 - 2303020F

Lögð fram til kynningar fundargerð 606. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 13. apríl 2023.

Fundargerðin er í tíu liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:11.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?