Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
503. fundur 01. desember 2022 kl. 17:00 - 18:40 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir aðalmaður
  • Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Gjaldskrár 2023 - 2022050015

Tillaga frá 236. fundi íþrótta- og tómstundanefndar, sem fram fór 16. nóvember 2022, sbr. breytingatillögu frá 1220. fundi bæjarráðs, þann 21. nóvember 2022, um að bæjarstjórn samþykki breytta gjaldskrá sundlauga og skíðasvæða Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2023, þannig að börn upp að 18 ára aldri greiði ekki fyrir aðgang í sund, og að árskort barna frá 6-18 ára á skíðasvæðum Ísafjarðarbæjar verði með 50% afslætti af verði fullorðinskorta.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri, Elísabet Samúelsdóttir, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Fjárhagsáætlun 2023 - 2022050009

Bæjarstjóri leggur fram, til síðari umræðu, tillögu að fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar, stofnana og fyrirtækja, fyrir árið 2023, ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2024-2026.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri, Gylfi Ólafsson, Jóhann Birkir Helgason, Kristján Þór Kristjánsson, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja fram eftirfarandi breytingartillögu:

„Hækkun á fasteignaskatti á íbúðarhúsnæði er 22,23% eða 53,8 millj. hækkun milli ára sem leggst beint á íbúa sveitarfélagsins eða 14.000 kr á hvern íbúa sveitarfélagsins. Lóðarleiga hækkar einnig milli ára og því er hækkunin enn meiri eða um 17.000 á hvern íbúa. Eðlilegt væri að hækkun fasteignaskatts hækkaði í sama hlutfalli og verðbólga, eins og aðrar gjaldskrár sveitarfélagsins. Lagt er til að fasteignaskattsprósenta verði 0,52% í stað 0,56%.“

Forseti bar breytingatillöguna upp til atkvæða.
Jóhann Birkir og Steinunn Guðný samþykktu breytingatillöguna, Magnús Einar, Nanný Arna, Gylfi, Sigríður Júlía, og Arna Lára höfnuðu henni og Kristján Þór og Elísabet sátu hjá við atkvæðagreiðslu.
Breytingatillagan felld.

Forseti bar tillögu að fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára áætlun 2024-26 upp til atkvæða.

Tillaga að fjárhagsáætlun samþykkt 7-2.
Jóhann Birkir og Steinunn Guðný greiddu atkvæði gegn samþykkt fjárhagsáætlunar.

Lagðar voru fram þrjár bókanir; frá bæjarfulltrúum Í-lista, B-lista og D-lista, og voru bókanirnar framlagðar í fylgiskjölum með fundargerð (vegna tæknilegra atriða).

3.Heildræn árangursstjórnun í fjármálum - 2022060019

Tillaga frá 1221. fundi bæjarráðs, frá 28. nóvember 2022, um að bæjarstjórn samþykki fjárhagsleg markmið Ísafjarðarbæjar.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson, Kristján Þór Kristjánsson, Jóhann Birkir Helgason og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2022 - 2022040056

Tillaga frá 236. fundi bæjarráðs, sem fram fór 21. nóvember 2022, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 20 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2022.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar skv. fjárhagsáætlun ársins 2022 er kr 0,-.

Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er jákvæð um 3.896.026,- og lækkar rekstrarhalli því úr kr. 381.285.073,- í kr. 377.389.047,-
Áhrif viðaukans á samantekna A og B hluta er kr. 0,- og er rekstrarhalli því óbreyttur í kr. 149.782.044.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar desember 2022 - 2022110122

Bæjarstjóri leggur fram til fyrri umræðu breytingar á samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, en um er að ræða breytingar á 48. gr. samþykktarinnar.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Samþykkt um meðhöndlun úrgangs 2022 - 2022110123

Bæjarstjóri leggur fram til fyrri umræðu samþykkt um meðhöndlun úrgangs hjá Ísafjarðarbæ.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Kristján Þór Kristjánsson, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Jóhann Birkir Helgason, Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Framtíð og rekstur Studio Dan - 2022100116

Tillaga frá 1221. fundi bæjarráðs, frá 28. nóvember 2022, um að bæjarstjórn samþykki kaupsamning við Studio Dan ehf. um kaup eignasjóðs á tækjum og búnaði í eigu félagsins, auk þess að samþykkja undirritun yfirlýsingar um slit eignalauss félags til RSK.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Byggðasafn Vestfjarða - leigusamningur Neðsta kaupstaðar 2022 - 2022110094

Tillaga frá 1221. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 28. nóvember 2022, um að bæjarstjórn samþykki húsaleigusamning Ísafjarðarbæjar við Byggðasafn Vestfjarða, en um er að ræða leigu fasteigna Ísafjarðarbæjar í Neðstakaupstað til 30 ára.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Endurnýjun kjarasamningsumboðs og samkomulag um launaupplýsingar - 2022110096

Tillaga frá 1221. fundi bæjarráðs, frá 28. nóvember 2022, um að bæjarstjórn samþykki kjarasamningsumboð Ísafjarðarbæjar og samkomulag um afhendingu launaupplýsinga til Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Fjarðarstræti 20. Umsókn um breytingu á deiliskipulagi eyrarinnar - 2022020084

Tillaga frá 597. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, frá 24. nóvember 2022, um að bæjarstjórn staðfesti tillögu KOA arkitekta ehf., dags. 22. nóvember 2022, að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Eyrarinnar á Ísafirði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. laga 123/2010.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Ósk um deiliskipulagsbreytingu við Mjólkárvirkjun - 2022110032

Tillaga frá 597. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, frá 24. nóvember 2022, um að bæjarstjórn heimili að auglýsa breytingu á deiliskipulagi við Mjólkárvirkjun í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

12.Ósk um skipulagsbreytingar við Mjólká - 2022110031

Tillaga frá 597. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, frá 24. nóvember 2022, um að bæjarstjórn heimili málsmeðferð í samræmi við 1. mgr. 36. gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

13.Samningur við foreldrafélag skíðabarna - 2020100052

Tillaga frá 597. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, frá 24. nóvember 2022, um að bæjarstjórn heimili stofnun lóðar undir skíðaskálann, Tungudal 3 á Ísafirði.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

14.Aðalgata 37 - umsókn um lóðarleigusamning - 2022100041

Tillaga frá 597. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, frá 24. nóvember 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Aðalstræti 37, Suðureyri.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

15.Hlíðarvegur 14 á Suðureyri. Umsókn um lóðarleigusamning - 2022100050

Tillaga frá 597. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, frá 24. nóvember 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Hlíðarveg 14 á Suðureyri í samræmi við framlagt mæliblað tæknideildar.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

16.Hreggnasi 10, Hnífsdal. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2022110036

Tillaga frá 597. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, frá 24. nóvember 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Hreggnasa 10 í Hnífsdal samkvæmt gildandi deiliskipulagi.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

17.Bæjarráð - 1221 - 2211020F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1221. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 28. nóvember 2022.

Fundargerðin er í 13 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

18.Bæjarráð - 1220 - 2211015F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1220. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 21. nóvember 2022.

Fundargerðin er í 17 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

19.Íþrótta- og tómstundanefnd - 236 - 2211011F

Lögð fram til kynningar fundargerð 236. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 16. nóvember 2022.

Fundargerðin er í fjórum liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

20.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 597 - 2211018F

Lögð fram til kynningar fundargerð 597. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 24. nóvember 2022.

Fundargerðin er í ellefu liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:40.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?