Pósturinn — Bréfberi

Pósturinn leitar að kraftmiklum og ábyrgðarfullum bréfbera í hlutastarf á Ísafirði.

Starfið felst í útburði, flokkun á pósti og aðstoð á pósthúsi eftir þörfum.

Vinnutími er umsemjanlegur og starfið hentar því vel með námi.

Hæfnikröfur:

  • Bílpróf kostur

  • Rík þjónustulund

  • Stundvísi og samviskusemi

  • Jákvæðni

Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2024. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóngunnar Biering Magnússon, rekstrarstjóri - í tölvupósti jonm@postur.is.

Sækja um

Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?