Leikskólinn Sólborg Ísafirði – Leikskólakennari/starfsmaður í leikskóla

Leikskólinn Sólborg á Ísafirði auglýsir laus til umsóknar 100% störf leikskólakennara eða starfsmanna í leikskóla. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 12. ágúst 2024 eða eftir nánara samkomulagi.

Sólborg er fjögurra deilda leikskóli sem starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia en í skólanum eru um 60 börn. Um er að ræða mjög skemmtileg og gefandi störf í lifandi starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð íslenskukunnátta

Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari og verður þá um tímabundin störf að ræða til eins árs.

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2024. Umsóknir skulu sendar til Helgu Bjarkar Jóhannsdóttur leikskólastjóra á netfangið solborg@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréf. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Helga Björk, í síma 450-8285 / 848-2097 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um störfin. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?