ÍSÍ og UMFÍ — Svæðisfulltrúi á Vestfjörðum
Hefur þú brennandi áhuga á íþróttum og lýðheilsu og vilt hafa jákvæð áhrif á þitt nærumhverfi? Þrífst þú vel í síbreytilegu vinnuumhverfi og vinnur vel með öðrum? Ef svarið er já erum við með spennandi starf fyrir þig!
ÍSÍ og UMFÍ leitar að hæfileikaríkum og metnaðarfullum einstaklingum með brennandi áhuga á íþróttastarfi á Íslandi til að taka þátt í að byggja upp öflugt starf íþróttahéraða á öllu landinu.
Sem starfsmaður svæðastöðva munt þú taka þátt í að skapa tækifæri og þróa árangursríkt íþróttaumhverfi fyrir börn - og ungmenni. Þú munt fá tækifæri til að vinna að fjölbreyttum verkefnum sem miða að því að hámarka tækifæri barna - og ungmenna til íþróttaiðkunar. Starfsemi svæðastöðva byggir á teymishugsun þar sem samvinna, fagmennska og framsækni í sterkri liðsheild er grundvallaratriði.
Starfið snýst um vinnu á átta nýjum svæðastöðvum vítt og breytt um landið. Tveir starfsmenn verða á hverri starfsstöð eða sextán um allt land og munu þeir vinna saman sem einn þar sem styrkleikar og hæfileikar hvers og eins verða nýttir.
Svæðisfulltrúi á Vestfjörðum þjónustar eftirfarandi íþróttahéruð
- Héraðssambandið Hrafna-Flóki (HHF)
- Héraðssamband Bolungarvíkur (HSB)
- Héraðssamband Strandamanna (HSS)
- Héraðssamband Vestfirðinga (HSV)
Markmiðið með svæðastöðvunum
- Vinna með íþróttahéruðum að eflingu íþróttastarfs um allt land.
- Vinna að innleiðingu á stefnu og markmiðum íþróttahreyfingarinnar.
- Vinna að innleiðingu á stefnu og markmiðum stjórnvalda í íþróttamálum.
- Bæta almennt umgjörð í kringum íþróttastarf.
Helstu verkefni svæðastöðva
- Samstarf, samskipti og stuðningur við íþróttahéruð og aðildarfélög.
- Samstarf og samskipti við opinbera aðila varðandi stuðning og þjónustu íþróttafélaga um allt land.
- Vinnsla verkefna sem tengjast aukinni þátttöku barna í íþróttum og farsæld.
- Verkefnisstjórnun og vinna að nýsköpunarverkefnum.
- Móta skipulag og eftirfylgni tengt fræðslumálum íþróttahéraða.
- Fræðsla og kynning til íþróttahéraða og aðildarfélaga í ýmsum málum.
- Samræming málaflokka, stjórnarhátta, verkferla, öryggis- og viðbragðsáætlana.
- Koma upp og viðhalda leiðbeiningum og viðmiðum fyrir stjórnun íþróttahéraða og stjórnendur íþróttafélaga.
- Yfirlit og eftirfylgni með lögbundnum skyldum íþróttahéraða og aðildarfélaga.
- Umsjón og þátttaka í samráði og á samræmingarfundum.
Menntunar og hæfniskröfur
- Leitað er að hæfileikaríkum einstaklingum með fjölbreytta þekkingu til að gegna ofangreindum verkefnum.
- Reynsla og þekking af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi og samstarfi við sveitarfélög er kostur.
- Styrkleiki og reynsla á eftirfarandi sviðum er kostur:
- verkefnastjórnun
- mótun ferla
- fræðsla og miðlun upplýsinga
- teymisvinna
Til viðbótar er mikilvægt að umsækjendur búi yfir frumkvæði, séu sjálfstæðir, geti unnið í teymi, miðlað upplýsingum munnlega og skriflega, unnið skipulega, haft góða samskiptahæfileika og getu til að ná árangri í mjög fjölbreyttu umhverfi.
Umsækjendur þurfa að sjálfsögðu að hafa hreint sakavottorð í samræmi við ákvæði í íþróttalögum.
Nánari upplýsingar veita:
Sverrir Briem - sverrir@hagvangur.is
Hanna Carla Jóhannsdóttir - hannacarla@isi.is
Um verkefnið
ÍSÍ og UMFÍ standa að verkefninu og hafa auk þess fengið stuðning frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Samtökin hafa undirritað samning um eflingu íþróttastarfs á landsvísu með því að koma á fót svæðastöðvum og hvatasjóði. Svæðastöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum auk þess að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstaka áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Búið er að skipta öllu landinu upp í átta svæði þar sem á hverju svæði verður unnið í samvinnu við íþróttahéruð, aðildarfélög íþróttahreyfingarinnar og opinberum aðilum að markmiðum samningsins og stefnu ríkisins og íþróttahreyfingarinnar í íþróttamálum.
Frekari upplýsingar um verkefnið má finna á vefsíðu www.isi.is og www.umfi.is.