Ísafjarðarbær - Hvesta hæfingarstöð – Stuðningsfulltrúi - sumarstarf

Hvesta hæfingarstöð sem er vinnu og virknimiðað úrræði fyrir fatlað fólk auglýsir laust til umsóknar starf stuðningsfulltrúa. Um er að ræða 50-100% tímabundið starf yfir sumartímann. Starfið er unnið á dagvinnutíma þar sem vinnutími er breytilegur. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf í lok maí, byrjun júní og unnið til loka ágústmánaðar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til vinnu og ýmissa tómstunda
  • Önnur tilfallandi störf samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Almenn ökuréttindi

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).

Umsóknum skal skilað til Sigþrúðar Margrétar Gunnsteinsdóttir, forstöðumanns Hvestu á sigthrudur@isafjordur.is. Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2024. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.

Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?