Icelandair — Sumarstarf við flugþjónustu

Icelandair leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytilegt starf við þjónustu og afgreiðslu flugfarþega á Ísafirði. Um er að ræða sumarstarf í hlutastarfi.

Mikil áhersla er lögð á þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum til að tryggja jákvæða upplifun farþega.

Hæfnikröfur:

  • Áhugi og reynsla af þjónustustörfum er mikilvæg
  • Mjög góð íslensku og enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta
  • Gilt bílpróf og vinnuvélaréttindi æskilegt
  • 18 ára lágmarksaldur

Starfssvið:

  • Störf á flughlaði við komur og brottfarir flugvéla svo sem lestun og losun
  • Annast almenna starfsemi í flugstöð
  • Upplýsingagjöf og þjónusta við viðskiptavini m.a. í gegnum síma
  • Innritun farþega og farangurs og eftir tilvikum afgreiðsla á vörusendingum
  • Bókanir og fullnaðarfrágangur á fyrirframgreiddri þjónustu
  • Skoðun skilríkja og afgreiðsla farþega við brottfarahlið. Staðfesta heildarfjölda farþega um borð
  • Önnur þau störf sem yfirmaður kann að fela starfsmanni

Þeir sem valdir verða úr hópi umsækjenda þurfa að sækja undirbúningsnámskeið.

Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.

Umsóknarfrestur til og með 15. apríl, áhugasamir sendi inn umsókn ásamt ferilskrá

Nánari upplýsingar veitir:

Þorlákur Ragnarsson, stöðvarstjóri, thorlakurr@icelandair.is

Sækja um

Er hægt að bæta efnið á síðunni?