Heilsuleikskólinn Laufás, Þingeyri – Leikskólakennari/starfsmaður í leikskóla

Heilsuleikskólinn Laufás á Þingeyri auglýsir laust til umsóknar 100% starf leikskólakennara. Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari. Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf 26. ágúst 2024. Um er að ræða mjög skemmtilegt og gefandi starf í lifandi starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknir skulu sendar til Ingu Jónu Sigurðardóttur leikskólastjóra á netfangið ingasi@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og leyfisbréf. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Inga, í síma 450-8270 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst. Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2024.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?