Grunnskólinn á Þingeyri – Grunnskólakennarar - Íþróttakennari

Laus eru til umsóknar við Grunnskólann á Þingeyri 80-100% störf umsjónarkennara á yngsta og elsta stigi. Áhersla á kennslu íslensku, upplýsingatækni, stærðfræði, náttúru- og samfélagsgreina.

Einnig er laust til umsóknar 50-100% starf mynd- og textílkennara (möguleiki á meiri kennslu í bóklegum greinum og stuðning til að auka starfshlutfall).

Skólinn leitar sömuleiðis eftir íþróttakennara í hlutastarf með sveigjanleika og samstarfi við íþróttafélag ef áhugi er fyrir því. Um er að ræða um 65-80% starf (möguleiki á meiri kennslu í bóklegum greinum og stuðning til að auka starfshlutfall).

Næsta skólaár verða um 40 nemendur í Grunnskólanum á Þingeyri í 1.-10. bekk. Skólinn starfar eftir Uppbyggingarstefnunni og eru einkunnarorð skólans ábyrgð, virðing, samheldni og gleði. Á Þingeyri búa um tæplega 300 íbúar og þar má finna íþróttahús, sundlaug, golfvöll, reiðskemmu og litla verslun Umhverfið fjarðarins er rómað fyrir mikla náttúrufegurð og veðursæld. Í Ísafjarðarbæ öllum búa tæplega 4000 íbúar en Ísafjörður er í um 50 km fjarlægð frá Þingeyri.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu samkvæmt markmiðum aðalnámskrár og stefnu skólans
  • Skipuleggur kennslu sína í samræmi við markmið grunnskólalaga og með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni
  • Fylgist með námi, þroska og félagslegu gengi nemenda sinna.
  • Hefur forgöngu um aðgerðir ef eitthvað bregður út af varðandi nám eða annað
  • Sér um vitnisburð og skýrslugerð varðandi nemendur.
  • Fylgist með skólasókn nemenda og skráir hana samkvæmt fyrirmælum
  • Er í samstarfi við foreldra og samfélag eftir því sem viðeigandi er

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Kennsluréttindi í grunnskóla
  • Reynsla af kennslu kostur
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskipum og skipulagsfærni
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk stundvísi og samviskusemi
  • Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti
  • Góð færni á sviði tækni og nýsköpunar er æskileg

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.

Umsókn skal skilað til Ernu Höskuldsdóttur skólastjóra á netfangið ernaho@isafjordur.is og með henni skal fylgja ferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréf. Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2024. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Allar nánari upplýsingar veitir Erna í síma 450-8370 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um störfin. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?