Grunnskólinn á Suðureyri – Grunnskólakennari

Laust er til umsóknar við Grunnskólann á Suðureyri starf kennara. Um er að ræða 50% starf við kennslu á miðstigi s.s. í heimilisfræði, áhugasviði og smiðju.

Í dag eru nemendur Grunnskóla Suðureyrar rúmlega 40. Einkunnarorð skólans eru ástundun, árangur og ánægja. Í skólanum er unnið með Uppbyggingarstefnu í öllum samskiptum, verið er að innleiða leiðsagnarnám og lögð er áhersla á að kennarar fikri sig áfram á sviði tækni- og nýsköpunar. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2024.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu samkvæmt markmiðum aðalnámskrár og stefnu skólans
  • Skipuleggur kennslu sína í samræmi við markmið grunnskólalaga og með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni
  • Fylgist með námi, þroska og félagslegu gengi nemenda sinna.
  • Hefur forgöngu um aðgerðir ef eitthvað bregður út af varðandi nám eða annað
  • Sér um vitnisburð og skýrslugerð varðandi nemendur.
  • Fylgist með skólasókn nemenda og skráir hana samkvæmt fyrirmælum
  • Er í samstarfi við foreldra og samfélag eftir því sem viðeigandi er

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Kennsluréttindi í grunnskóla
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskipum og skipulagsfærni
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk stundvísi og samviskusemi
  • Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti
  • Góð færni á sviði tækni og nýsköpunar er æskileg

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknum skal skilað til Vilborgar Ásu Bjarnadóttur skólastjóra á netfangið vilborgbj@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá, afrit af leyfisbréfi og prófskírteinum. Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2024. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Allar nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 450-8395 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um störfin. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

-Við þjónum með gleði til gagns-

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?