Deildarstjóri stoðþjónustu við Grunnskólann á Ísafirði

Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir starf deildarstjóra stoðþjónustu laust til umsóknar frá 1. ágúst 2024. Um er að ræða 100% starf.

Skólinn er byggður sem einsetinn skóli með um það bil 390 nemendur og fer öll kennsla fram undir sama þaki, utan íþrótta- og sundkennslu. Undanfarin ár hefur skólinn unnið eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og innleitt kennsluaðferðir leiðsagnarnáms. Skólinn er í góðu og öflugu samstarfi við íþróttahreyfinguna og listaskóla bæjarins en á Ísafirði er fjölbreytt samfélag þar sem hreyfing og menning skipa stóran sess. Næsti yfirmaður deildarstjóra er skólastjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með sérkennslu og kennslu íslensku sem annars máls.
  • Sér til þess að veitt sé stoðþjónusta í hverjum árgangi eftir þörfum.
  • Er tengiliður skólans við sálfræðinga, talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga og stofnanir sem tengjast skólanum.
  • Veitir stuðningsfulltrúum faglegan stuðning.
  • Situr teymis- og skilafundi eftir því sem við á.
  • Aðstoðar kennara við gerð einstaklingsnámskráa.
  • Hefur eftirlit með námsgögnum sem eru sérstaklega ætluð sérkennslu og sér um skipulagningu á sérkennsluaðstöðu í samráði við aðra stjórnendur.
  • Fundar með sérkennurum og þroskaþjálfum reglulega yfir veturinn.
  • Skrifar skýrslu um starf skólaársins sem er hluti af ársskýrslu skólans.
  • Útbýr aðlagaðar stundaskrár nemenda þegar þörf er á.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (s.s. kennaramenntun, þroskaþjálfamenntun)
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði sérkennslu
  • Stjórnunarreynsla æskileg
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og metnaður
  • Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, önnur tungumál kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknum skal skilað til Kristjáns Arnars Ingasonar skólastjóra á netfangið kristjanin@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og leyfisbréf. Umsóknarfrestur um starfið er til og með 22. apríl 2024. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Arnar í síma 450-8300 eða í gegnum tölvupóst.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?