Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
327. fundur 16. janúar 2013 kl. 16:00 - 16:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Auður Helga Ólafsdóttir aðalmaður
  • Gísli Halldór Halldórsson formaður
  • Sigurlína Jónasdóttir skóla- og daggæslufulltrúi
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Steinþór Bragason varamaður
Fundargerð ritaði: Sigurlína Jónasdóttir
Dagskrá
Ólöf Hildur Gísladóttir mætti ekki, og mætti Steinþór Bragason í hennar stað. Benedikt Bjarnason og Helga Dóra Kristjánsdóttir mættu ekki og enginn í þeirra stað.

Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir leikskólamál: Svava Rán Valgeirsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra og Sif Huld Albertsdóttir, fulltrúi fore

1.Innra eftirlit með leiksvæðum Ísafjarðarbæjar - 2012120015

Lögð fram handbók sem ætluð er fyrir rekstrarskoðun leiksvæða og skemmtigarða. Handbókin er gefin út af RoSPA(Royal Society og Prevention of Accidents) í Bretlandi og er þýdd og staðfærð á vegum Umhverfisstofnunar.
Lagt fram til kynningar.

2.Afsláttargjald leikskóla - 2013010033

Lagt fram minnisblað frá Sigurlínu Jónasdóttur, skóla- og sérkennslufulltrúa, dagsett 11. janúar 2013, þar sem óskað er eftir því að fræðslunefnd taki afstöðu til þess hvort að foreldrar sem eru einstæðir eða báðir námsmenn og eiga fleiri en eitt barn í leikskóla, geti verið bæði með afslátt sem einstæðir foreldrar og/eða námsmenn og einnig fengið systkinaafslátt, misjafnt er hvernig þetta er í öðrum sveitarfélögum, sum eru með báða afslættina en önnur bara annan.
Fræðslunefnd leggur til að systkinaafsláttur verði reiknaður af leikskólagjaldi eftir að lækkað hefur verið vegna annarra afslátta.

3.Beiðni um breytingar á starfsdögum - 2013010034

Lagt fam bréf frá Helgu Björk Jóhannsdóttur, leikskólastjóra Sólborgar, dagsett 4. janúar 2013, þar sem óskað er eftir að fá að færa starfsdag sem er á skóladagatalinu 24. apríl 2013 til 25. mars 2013.
Fræðslunefnd samþykkir breytinguna á skóladagatali Sólborgar.

4.Lokað 24. og 31 des. - 2013010035

Lagt fram bréf frá Helgu Björk Jóhannsdóttur, leikskólastjóra Sólborgar fyrir hönd allra leikskólastjóra í Ísafjarðarbæ, dagsett 9. janúar 2013 þar sem óskað er eftir að leikskólar Ísafjarðarbæjar verði lokaðir 24. og 31. desember.
Fræðslunefnd hafnar því að leikskólarnir verði lokaðir 24. og 31. desember.

5.Starfsmannastefna Ísafjarðarbæjar - Endurskoðun - 2011020053

Lögð fram drög að starfsmannastefnu Ísafjarðarbæjar.
Fræðslunefnd veltir upp þeirri spurningu hvort að skilgreina ætti fjarverustefnu í starfsmannastefnunni.

6.Skýrslur grunnskóla 2012 - 2012010077

Lögð fram starfsáætlun Grunnskólans á Þingeyri 2013-2013.
Fræðslunefnd lýsir sérstakri ánægju með greinargóða skýrslu.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?