Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
386. fundur 04. janúar 2018 kl. 08:05 - 09:55 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir formaður
  • Bragi Rúnar Axelsson varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Guðrún Birgisdóttir skóla- og sérkennslufulltrúi
Fundargerð ritaði: Guðrún Birgisdóttir Skóla- og sérkennslufulltrúi
Dagskrá
Áheyrnafulltrúar fyrir grunnskólamál; Sveinbjörn Magnason, fulltrúi foreldra grunnskólabarna.
Áheyrnafulltrúar fyrir leikskólamál; Helga Björk Jóhannsdóttir, fulltrúi skólastjórnenda, Bryndís Gunnarsdóttir, fulltrúi kennara og Catherine Chambers, fulltrúi foreldra leikskólabarna.

1.Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.
Gerð var grein fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir og eru í vinnslu.

2.Ferlar vegna sérfræðiþjónustu í leik- og grunnskólum Ísafjarðarbæjar. - 2017120065

Lagðir fram ferlar vegna sérfræðiþjónustu í leik- og grunnskólum Ísafjarðarbæjar ef áhyggjur af þroska, hegðun eða líðan barns vakna.
Fræðslunefnd þakkar fyrir kynninguna og gerir engar athugasemdir við ferlana.

3.Reiknilíkan fyrir leikskóla Ísafjarðarbæjar - 2017120066

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs er varðar nýtt reiknilíkan fyrir leikskólana í Ísafjarðarbæ.
Lagt fram til kynningar, áframhaldandi vinna og útfærsla verður unnin.

Gestir

  • Svava Rán Valgeirsdóttir leikskólastjóri á Suðureyri - mæting: 08:20

4.Endurskoðun á skólastefnu Ísafjarðarbæjar - 2016100048

Staða vinnu við endurskoðun skólastefnu Ísafjarðarbæjar kynnt.
Endurskoðun verður áfram í vinnslu skóla- og tómstundasviðs og stýrihópsins.

Gestir

  • Svava Rán Valgeirsdóttir og Þormóður Logi Björnsson - mæting: 08:40

Fundi slitið - kl. 09:55.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?