Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
376. fundur 19. janúar 2017 kl. 08:10 - 09:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir formaður
  • Bragi Rúnar Axelsson varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Guðrún Birgisdóttir skóla- og sérkennslufulltrúi
Fundargerð ritaði: Guðrún Birgisdóttir Skóla- og sérkennslufulltrúi Ísafjarðarbæjar.
Dagskrá
Fundinn sátu fyrir hönd grunnskólastjórnenda Sveinfríður Olga Vetuliðadóttir, og fulltrúi kennara var Bryndís Birgisdóttir.

1.Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar
Gerð var grein fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir og stöðu þeirra.

2.PISA niðurstöður - 2017010049

Lagðar fram niðurstöður úr PISA könnun.
Fræðslunefnd lýsir ánægju sinni yfir þróun og niðurstöðum Pisa könnunar og óskar öllum sem komu að málum til hamingju. Þessa góðu niðurstöðu verður litið á sem hvatningu til frekari dáða, en ekki vísbendingu um að öllum markmiðum sé nú náð.

3.Skólamál á Flateyri - 2016110039

Lagt fram til umsagnar erindisbréf, vegna samráðshóps um leik- og grunnskólastarf á Flateyri.
Fræðslunefnd hefur farið yfir erindisbréf samráðshópsins og gerir ekki aðrar athugasemdir en þær að tímaramminn sé of rúmur og telur að vinnu starfshópsins ætti að vera lokið 1. júní 2017, svo vinnan megi nýtast sem best í stefnumótunarvinnu sem fræðslunefnd er að fara í.

Gestir

  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari - mæting: 08:40

4.Skóladagatal 2016-2017 - 2016030044

Lagt fram bréf frá Svövu Rán Valgeirsdóttur, leikskólastjóra Tjarnarbæjar á Suðureyri, þar sem óskað er eftir breytingu á skóladagatali.
Fræðslunefnd samþykkir þessa breytingu.

Fundi slitið - kl. 09:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?