Bæjarráð - 937. fundur - 11. júlí 2016
Dagskrá:
1. |
Ósk um stuðning með börnum - 2016070017 |
|
Lagt er fram minnisblað Margrétar Halldórsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 6. júlí sl., með beiðni leikskólans Eyrarskjóls um stuðning. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera viðauka við fjárhagsáætlun 2016 og leggja málið aftur fyrir nefndina. |
||
|
||
Gestir |
||
Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs - 08:10 |
||
|
||
|
||
2. |
Þjónusta Flugfélags Íslands við Ísafjarðarflugvöll - 2016010005 |
|
Lagt er fram svarbréf Sigurbergs Björnssonar, f.h. innanríkisráðherra, dags. 7. júlí sl. varðandi þjónustu Flugfélags Íslands við Ísafjarðarflugvöll. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
3. |
Mánaðaryfirlit 2016 - 2016050081 |
|
Lagt er fram minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 8. júlí sl., ásamt árshlutareikningi fyrsta ársfjórðungs samstæðu Ísafjarðarbæjar. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
4. |
Mýrarboltinn 2016-2018 - 2016070028 |
|
Umræður um stuðning Ísafjarðarbæjar við Mýrarboltafélag Íslands ehf. 2016. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við Mýrarboltafélagið um framlengingu samnings og frekari stuðning við félagið vegna Mýrarboltans 2016. |
||
|
||
5. |
Hvilft, Önundarfirði - leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026 |
|
Að nýju er lögð fram beiðni Rósu Ólafsdóttur, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 28. apríl sl., um umsögn um nýtt rekstrarleyfi að Hvilft, Önundarfirði, ásamt umsókn dags. 11. apríl og umsögn Axels Rodriguez Överby, skipulags- og byggingarfulltrúa, dags. 27. júní sl. |
||
Í umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa kemur fram að umsóknin sé í trássi við skipulag Ísafjarðarbæjar. Þar sem ekki er um endurnýjun að ræða sér bæjarráð sér ekki fært að samþykkja veitingu rekstrarleyfisins, en bendir umsækjanda á að hægt er að óska eftir breytingu á skipulagi, sem bæjarráð telur ekki óeðlilegt í þessu tilviki. |
||
|
||
6. |
Edinborg Bistro, Aðalstræti 7 - rekstrarleyfi veitingarstaðar - 2016010026 |
|
Lögð er fram beiðni Magnúsar Salvarssonar, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, um umsögn, dags. 15. júní sl., um umsókn Sveitasælunnar ehf. um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir veitingastað í flokki III að Aðalstræti 7, Ísafirði, dags. 13. apríl sl., ásamt umsögn Axels Rodriguez Överby, skipulags- og byggingarfulltrúa, dags. 30. júní sl. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. |
||
|
||
7. |
Bræðraborg - rekstrarleyfi veitignarhús í flokki II - 2016010026 |
|
Lögð er fram beiðni Magnúsar Salvarssonar, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, um umsögn, dags. 6. júlí sl., um umsókn Skútusiglinga ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað/kaffihús að Aðalstræti 22B , ódags., ásamt umsögn Axels Rodriguez Överby, skipulags- og byggingarfulltrúa, dags. 8. júlí sl. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. |
||
|
||
8. |
Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2016020019 |
|
Lagðar eru fram eftirfarandi fundargerðir: |
||
Fundargerðir lagðar fram til kynningar. |
||
|
||
9. |
Náttúrustofa - ársfundur 2016 - 2016050085 |
|
Lögð er fram fundargerð ársfundar aðildarsveitarfélaga Náttúrustofu Vestfjarða sem haldinn var 14. júní sl. |
||
Fundargerð lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:27
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Jónas Þór Birgisson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |