Umhverfisnefnd
144. fundur
144. fundur var haldinn miðvikudaginn 13. febrúar 2002 kl.17:00
Fundarstaður: Fundarsalur bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu, Ísafirði
Örn Ingólfsson f.h. Póls h.f. dregur með erindi dags. 11. janúar 2002, byggingarleyfisumsókn dags. 19. nóvember 2001, til baka að sinni. En afgreiðsla 2. erindis 143. fundar umhverfisnefndar þann 9. janúar s.l. sé á þann veg að fyrirtækið hafi möguleika, til lengri tíma litið, á stækkun skv. framlögðum teikningum Tækniþjónustu Vestfjarða.
Byggingarfulltrúi upplýsti að Póls hafi verið skrifað bréf þar sem gerð er grein fyrir að byggingarleyfi falli úr gildi hafi framkvæmdir ekki hafist innan eins árs frá því að það var veitt.
Í bréfi Magnúsar Skúlasonar f.h. Húsafriðunarnefndar ríkisins, dags. 17. janúar 2002, er bókun Húsafriðunarnefndar þann 15. janúar s.l. þar sem lagt var fram erindi byggingarfulltrúans á Ísafirði dags. 19. nóvember 2001, varðandi niðurrif á Hreggnasa 3, Hnífsdal. Í samþykktri bókun Húsafriðunarnefndar er ekki talin ástæða til niðurrifs að svo stöddu, ennfremur er mælst til að gerð verði húsakönnun og þá tekin afstaða til niðurrifs.
Umhverfisnefnd bendir á að húsið er um 3,8 metrum frá vegbrún þjóðvegarins til Bolungarvíkur og því innan vegstæðið hans. Um þennan veg fara ca. 700 bílar á dag.
Byggingafulltrúa falið að mótmæla afstöðu húsafriðunarnefndar, bæði hvarð varðar afstöðu til niðurifs hússins og eins til húsakönnunar
Guðjón Guðmundsson óskar með erindi dags. 4. febrúar 2002, eftir heimild umhverfisnefndar til að hefja harðfiskverkun í "gamla húsi" björgunarsveitarinnar Sæbjargar á Flateyrarodda (áður bensínafgreiðsla Esso).
Erindinu er hafnað þar sem skv. deiliskipulagi er gert ráð fyrir að húsið verði fjarlægt af lóðinni og ekki gert ráð fyrir að annað rísi í þess stað. Bent er á að á Flateyrarodda eru lausar lóðir heppilegar fyrir þessa starfsemi.
Bæjarstjóri f.h. bæjarráðs vísar til umhverfisnefndar með erindi dags. 29. janúar 2002, bréfi Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða dags. 23. janúar s.l., þar sem fulltrúum bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar og þeim fulltrúum nefnda og starfsmönnum sem bæjarstjórn telur málið varða er boðið til fundar varðandi framtíðarsýn í þorskeldi á Vestfjörðum.
Fundinum hefur verið frestað til 26. febrúar og verður hann haldin í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Bæjarstjóri f.h. bæjarráðs óskar með erindi dags. 4. febrúar 2002, eftir umsögn umhverfisnefndar varðandi bréf sýslumanns Bolungarvíkur dags. 24. janúar s.l., um ökuhraða á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar. Í bréfinu greinir hann frá hugmyndum sínum um breytingar á ökuhraða á leiðinni. Í lok bréfsins leggur sýslumaður til að þær nefndir á vegum Bolungarvíkurkaupstaðar og Ísafjarðarbæjar sem hafi umferðarmál á sinni könnu, fundi sameiginlega með það í huga að marka stefnu til framtíðar um þær ráðstafanir sem æskilegar eru til tryggingar greiðri og öruggri umferð milli byggðarlaganna.
Umhverfisnefnd telur ekki tímabært að hækka leyfilegan hámhárkshraða í Krók og gegnum Hnífsdal við óbreyttar aðstæður. Umhverfisnefnd telur rétt að samræma leyfilegan hámarkshraða um Eyrarhlíð og á Óshlíð þannig að hann verði 80 km/klst.
Umhverfisnefnd leggur til að hraðað verði gerð göngustígs á milli Torfness og Ljónsins þannig að öryggi gangandi vegfarand verð tryggt og hægt að hækka leyfilegan hámarksökuhraða á þesssu svæði.
Bæjarstjóri f.h. bæjarráðs óskar með erindi dags 5. febrúar 2001, eftir umsögn umhverfisnefndar á tveimur frumvörpum frá samgöngunefnd Alþingis um samgöngumál. Frumvörpin voru send sveitarfélögum til umsagnar og er umsagnarfrestur til 15. febrúar n.k.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við frumvarpið.
Bæjarstjóri f.h. bæjarráðs óskar með erindi dags 5. febrúar 2001, eftir umsögn umhverfisnefndar á frumvarpi frá félagsmálanefnd Alþingis um vatnsveitur sveitarfélaga. Frumvarpið var sent sveitarfélögum til umsagnar og er umsagnarfrestur til 15. febrúar n.k.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við frumvarpið.
Bæjarstjóri f.h. bæjarráðs vísar með erindi dags 5. febrúar 2001, bréfi Skógræktar- félags Íslands til forsvarsmanna sveitarfélaga í tilefni þess að þann 23. janúar s.l. eru tíu ár liðin frá stofnun Yrkjusjóðs, til umhverfisnefndar.
Lagt fram til kynningar.
Bæjarritari f.h. bæjarráðs vísar með erindi dags. 22. janúar 2002, bréfi Skipulagsstofnunar dags. 9. janúar s.l., ásamt listum yfir skipulagsfulltrúa og þá sem sinna skipulagsgerð, til umhverfisnefndar til kynningar
Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og undirrituð. Fundi slitið kl. 18:15
Kristján Kristjánsson, formaður. Stefán Brynjólfsson, ritari.
Jónína Ólöf Emilsdóttir. Jóna Benediktsdóttir.
Sigurður Þórisson. Sigurður Mar Óskarsson.
Kristján Finnbogason, varaslökkviliðsstjóri.