Menningarnefnd

56. fundur

Árið 2000, þriðjudaginn 4. júlí kl. 16:15 hélt menningarnefnd fund í fundarsal Skóla- og fjölskylduskrifstofu á 4. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Mættir voru undirritaðir.

Þetta var gert:

1. Vestfjarðavíkingur 2000, erindi frá bæjarráði.

Lagt fram bréf undirritað af bæjarritara dagsett 16. maí s.l., þar sem erindi Guðmundar Otra Sigurðssonar og Magnúsar Ver Magnússonar varðandi Vestfjarðavíking er vísað til menningarnefndar. Í bréfinu er óskað eftir sömu fyrirgreiðslu Ísafjarðarbæjar varðandi Vestfjarðavíking 2000 og var á síðasta ári.

Menningarnefnd telur sig ekki hafa til ráðstöfunar fjármagn til að styrkja Vestfjarðavíking á þessu ári og hafnar erindinu.

2. Skíðasvæði á Tungudal og Seljalandsdal. Aðalskipulag.

Lagt fram bréf Ármanns Jóhannessonar, bæjarverkfræðings, dagsett 19. maí s.l., þar sem hann f.h. umhverfisnefndar leitar umsagnar menningarnefndar á tillögum til breytinga á aðalskipulagi vegna skíðasvæðis í Tungudal og á Seljalandsdal.

Menningarnefnd fagnar tillögum þeim er fram eru komnar og gerir ekki athugasemdir við þær.

3. Ljósmyndasýning. - Tölvubréf frá Jóhannesi Eðvarðssyni.

Lagt fram tölvubréf frá Jóhannesi Eðvarðssyni dagsett 20. maí s.l., þar sem hann tilkynnir frestun á stórri sýningu ljósmunda afa síns hér á Ísafirði. Hins vegar hefur hann ákveðið að halda minni sýningu í Tjöruhúsi á Ísafirði.

Lagt fram til kynningar.

4. Dagskrá menningarveislu og 17. júní hátíðarhalda 2000.

Lögð fram dagskrá fyrir menningarveislu 17.-25. júní og 17. júní hátíðarhöld í Ísafjarðarbæ árið 2000.

Menningarnefnd þakkar öllum þeim er komu að framkvæmd menningarveislu og 17. júní hátíðarhalda, sem tókust með eindæmum vel í alla staði. Rósa B. Þorsteinsdóttir gerði að nokkru grein fyrir kostnaði við þessi hátíðahöld og telur að kostnaður sé innan áætlunar.

5. Rekstur upplýsingamiðstöðvar í Ísafjarðarbæ.

Lagt fram bréf frá bæjarstjóra dagsett 23. maí s.l., þar sem tilkynnt er um afgreiðslu bæjarráðs á tillögu menningarnefndar frá 55. fundi nefndarinnar 1. lið um tilboð er borist hefur í rekstur upplýsingamiðstöðvar á Ísafirði. Samþykkt bæjarráðs er svohljóðandi. ,,Bæjarráð samþykkir tillögu menningarnefndar, kostnaður kr. 1.600.000.- fjármagnast með kr. 1.250.000.- frá Ferðamálaráði og mismunur sem er kr. 350.000.- færist frá lið 15-42-973-1."

Lagt fram til kynningar.

6. Litli Leikklúbburinn. – Styrkbeiðni.

Lagt fram bréf frá Litla Leikklúbbnum dagsett 20. júní s.l., þar sem óskað er eftir styrk til ferðar á leiklistarhátíð Bandalags íslenskra leikfélaga á Akureyri.

Menningarnefnd samþykkir að veita Litla Leikklúbbnum styrk að upphæð kr. 50.000.-

7. Erindi bæjarverkfræðings. – Tjaldsvæði á Suðureyri.

Lagt fram bréf frá Ármanni Jóhannessyni, bæjarverkfræðingi, dagsett 13. júní s.l., er varðar tjaldsvæði á Suðureyri.

Lagt fram til kynningar.

8. Morrinn 2000. – Beiðni um greiðslu fyrir kostnaði vegna 17. og 18. júní.

Lagt fram bréf frá Morranum 2000 dagsett 19. júní s.l., þar sem farið er fram á að menningarnefnd taki þátt í kostnaði við þáttöku Morrans í hátíðahöldum 17. júní og stjórnmálasögusýningu þann 18. júní s.l.

Menningarnefnd vísar erindinu til fræðslunefndar, þar sem Morrinn er hluti af vinnuskóla Ísafjarðarbæjar.

9. Styrktarsjóður Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands.

Lagt fram erindi frá bæjarráði, bréf Styrktarsjóðs Brunabótafélags Íslands, þar sem óskað er eftir umsóknum um styrkveitingar úr sjóðnum fyrir ágústlok n.k. Bæjarráð óskar eftir hugmyndum frá menningarnefnd.

Lagt fram til kynningar.

Í lok fundar þakkaði formaður menningarnefndar Rósu B. Þorsteinsdóttur, fráfarandi skóla- og menningarfulltrúa, fyrir vel unnin störf og gott samstarf og árnar henni heilla í framtíðinni. Aðrir fundarmenn tóku undir þakkir og árnaðaróskir Rósu til handa.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:35

Þorleifur Pálsson, ritari.

Inga Ólafsdóttir, formaður. Kristján Haraldsson.

Hansína Einarsdóttir. Jón Ottó Gunnarsson.

Þórir Örn Guðmundsson. Rósa B. Þorsteinsdóttir.

Einnig mætti á fundinn.
Jón Sigurpálsson.