Landbúnaðarnefnd

67. fundur

Árið 2005, þann 28. apríl kl. 14:00 kom landbúnaðarnefnd Ísafjarðarbæjar saman til fundar á skrifstofu Ísafjarðarbæjar á Þingeyri.
Fundarritari: Þórir Örn Guðmundsson.

Þetta var gert:

1. Refa og minkaveiðar 2005. 2005-04-0042.

Auglýst var eftir veiðimönnum í B.B. 13. apríl s.l. og eftirtaldar umsóknir bárust.

Refir:
Auðkúluhreppur hinn forni: Sigurjón Hákon Kristjánsson og G. Kristján Gunnarsson Þingeyri. Einir Steinn Björnsson, Bíldudal.
Þingeyrarhreppur hinn forni: S. Valdimar Elíasson,Þingeyri.
Mýrarhreppur hinn forni: Kristján Einarsson,Flateyri. Hjalti Reynir Ragnasson og Helgi Jóhannesson, Ísafirði.
Önundafjörður: Kristján Einarsson Flateyri.
Súgandafjörður: Valur Richter, Ísafirði. Finnbogi Jónasson Ísafirði.
Skutulsfjörður: Guðmundur Valdimarsson Ísafirði.
Snæfjallahreppur hinn forni: Jónas Helgason Æðey.
Snæfjallahreppur hinn forni utan innra Skarðs að Bjarnarnúpi: Kristján Lyngmo, Ísafirði.
Jökulfjörðum að friðlandi: Magnús Sigurjónsson og Guðmundur J. Jóhannsson, Ísafirði.
Gamli Grunnavíkurhr. austan friðlands: Ragnar Jakobsson, Bolungarvík.

Landbúnaðarnefnd leggur til að eftirtaldir aðilar verði ráðnir að viðkomandi svæðum.

Auðkúluhreppi hinum forna:
Sigurjón Hákon Kristjánsson, Þingeyri. G. Kristján Gunnarsson, Þingeyri.
Þingeyrarhreppi hinum forna: S. Valdimar Elíasson, Þingeyri.
Mýrarhreppi hinum forna: Kristján Einarsson, Flateyri.
Önundafjörður: Kristján Einarsson, Flateyri.
Súgandafjörður: Valur Richter, Ísafirði.
Skutulsfjörður: Guðmundur Valdimarsson, Ísafirði.
Snæfjallahreppi hinum forna frá Kaldalóni að innra Skarði: Jónas Helgason, Æðey.
Snæfjallahreppi hinum forna utan innra Skarðs að Bjarnarnúpi.Kristján Lyngmo, Ísafirði.
Jökulfjörðum að friðlandi: H. Magnús Sigurjónsson, Ísafirði. Guðmundur J Jóhannsson, Ísafirði.
Gamli Grunnavíkurhr. austan friðlands: Ragnar Jakobsson, Bolungarvík.

Minkar:
Snæfjallahreppi hinum forna: Jónas Helgason, Æðey.
Gamli Grunnavíkurhr. austan friðlands: Ragnar Jakobsson, Bolungarvík.

Landbúnaðarnefnd leggur til að á öðrum svæðum verði einn aðili fenginn til minkaleitar. Leit verði hagað líkt og undanfarin ár. Leitað verði í kringum æðarvörp og út frá þeim.

2. Frístundabúskapur utan lögbýla í Ísafjarðarbæ. 2003-03-0026.

Á 59. fundi nefndarinnar 26. nóv. 2003, var gengið frá tillögu, "Umsókn um leyfi til frístundabúfjárhalds í Ísafjarðarbæ". Bæjarráð staðfesti tillöguna á 366. fundi sínum.

Í framhaldi af þeirri samþykkt leggur landbúnaðarnefnd til, að hver einstaklingur geti fengið leyfi fyrir allt að 10 fjár á húsum, að uppfylltum þeim skilyrðum er fram koma í umsókninni. Ennfremur að leyfisgjald verði ákveðið kr. 1.000,- fyrir hvert leyfi.
Einnig leggur nefndin til að þeir einir fái að halda fé sínu til beitar í bæjarlandinu sem hafa til þess leyfi og þá eingöngu fyrir þann fjölda sem fram kemur í leyfinu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:45

Guðmundur Steinþórsson, formaður.

Ari Sigurjónsson. Jón Jens Kristjánsson.

Þórir Örn Guðmundsson, ritari.