Hafnarstjórn

96. fundur

Árið 2004, þriðjudaginn 9. nóvember kl. 17:00 var haldinn fundur í hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar í Hafnarshúsinu á Ísafirði.
Mætt eru aðalfulltrúar Ragnheiður Hákonardóttir, formaður, Sigurður Hafberg, Jóhann Bjarnason,Kristján Andri Guðjónsson og Þórlaug Ásgeirsdóttir í stað Sigurðar Þórissonar. Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri, sem jafnframt ritaði fundargerð.

Í upphafi fundar gerði Ragnheiður Hákonardóttir grein fyrir frumhugmyndum að breyttu skipulagi á hafnarsvæði eftir kynningarfund með Guðnýu Ólöfu Valdimarsdóttur, arkitekt.

Þetta var gert.

1. Fjárhagsáætlun.

Drög að fjárhagsáætlun 2005 um helstu verkefni og fjárfestingar lögð fram.

Hafnarstjóri skýrði frá helsu verkefnum, sem þarf að huga að varðandi verkefni næsta árs. Helst var rætt um ástand vigtarskúra á Þingeyri og Flateyri og hvort hugsanlega mætti byggja ný hús á þessum stöðum frekar en að fara í kostnaðarsamt viðhald.
Gert er ráð fyrir svipuðu rekstrarári 2005 eins og stefnir í á yfirstandi ár.

Lagðar verða fyrir næsta fund hafnarstjórnar fullnaðar tillögur varðandi rekstrar- og tekjuliði næsta árs.

2. Mengunarástand sjávar á hafnarsvæði Ísafjarðarbæjar.

Erindi frá Jóhönnu Björk Weisshappel, sjávarlíffræðingi hjá verkfræðistofunni Hönnun hf. Þar sem hún gerir tillögur að mælingum og kostnaði við þær á hafnarsvæði Ísafjarðarhafnar.

Hafnarstjórn þakkar fyrir áhuga Jóhönnu á mengunnarástandi á hafnarsvæðinu. Hafnarstjórn telur ekki þörf á mengunnarmælingum þar sem Náttúrustofa Vestfjarða gerði umfangsmiklar mengunnarmælingar árið 2003.

3. Gjaldskrár. 2002-11-0032.

Hafnarstjóri gerir tillögu um, að aflagjald hækki úr 1.28% í 1,60%. Einnig að sett verði á farþegagjald kr. 220.- á hvern farþega sakvæmt heimild í 13. grein hafnarlaga nr. 61/2003. Sett verði öryggisgjald á skip sem falla undir ISPS reglur kr. 28.000.- fyrir hverja komu í höfn. Ennfremur hækki almennir taxtar hafnarinnar um 3,5%

Hafnarstjórn samþykkir framkomnar tillögur og vísar þeim til fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2005.

Kristján Andri Guðjónsson og Jóhann Bjarnason óskuðu bókað, að þeir taka ekki afstöðu til hækkunnar aflagjalds.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:40

Ragnheiður Hákonardóttir, formaður.

Sigurður Hafberg. Jóhann Bjarnason.

Kristján Andri Guðjónsson. Þórlaug Ásgeirsdóttir.

Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri.