Hafnarstjórn
83. fundur
Árið 2003, þriðjudaginn 11. nóvember kl. 17:00 var haldinn fundur
í hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar í Hafnarhúsinu á Ísafirði.
Mætt eru aðalfulltrúarnir Ragnheiður Hákonardóttir, formaður, Sigurður Þórisson,
Sigurður Hafberg, Jóhann Bjarnason og Guðmundur M Kristjánsson, hafnarstjóri.
Kristján Andri Guðjónsson var fjarverandi og varamaður mætti ekki í hans stað.
Sigurður Þórisson ritar fundargerð..
Dagskrá:
1. Samgönguáætlun 2005-2008.
Lagt fram bréf Siglingastofnunar dagsett 9. október 2003, vegna vinnu við samgönguáætlun 2005-2008. Þar kemur fram að umsóknum um framlög skal skila inn fyrir 1. desember 2003, ásamt staðfestingu á þeim framkvæmdum sem eru á samþykktri samgönguáætlun 2005-2006.
Hafnarstjórn staðfestir að þau verkefni sem eru á áætlun
2005-2006 verði óbreytt að öðru leiti en því að bætt verður við kaupum á
hafnsögubáti inná áætlun 2005-2006. Fyrir árin 2007-2008 verði lögð aðaláhersla
á dýpkun í Sundunum.
Hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar falið að vinna að tillögum að öðrum
framkvæmdum fyrir tímabilið 2007-2008
2. ISPS-kóði. - Siglinga- og hafnarvernd.
Lagt fram bréf IMG Deloitte dagsett 23. október 2003, þar sem
höfninni er boðin þjónusta vegna ISP-kóða. Um er að ræða verkefnastjórnun sem
felst í skilgreiningu áhættuþátta, áhættumats og tillögugerðar vegna
verndaráætlunar og verndarráðstöfunar.
Lagt fram til kynningar
3. Hafsögubáturinn Þytur.
Lögð fram yfirlitsskoðunarskýrsla Siglingastofnunar dags. 8.
október 2003, vegna hafnsögubátsins Þyts, sem unnin var að beiðni bæjarstjóra
vegna misvísandi fréttaflutnings Bæjarins Besta um ástand bátsins.
Lagt fram til kynningar.
Hafnarstjórn áréttar að framkomnar upplýsingar hafa þegar legið fyrir hjá hafnarstjórn.
4. Fjárhagsáætlun 2004.
Hafnarstjóri skýrði frá helstu tölum í fjárhagsáætlun fyrir
árið 2004, en gert er ráð fyrir rekstrartekjum upp á kr. 84 miljónir, en einnig er
gert ráð fyrir miklum framkvæmdum á árinu 2004 upp á kr. 109 miljónir, sem er
liður í þeirri áætlun að framkvæma sem mest fyrir árslok 2006.
Stefnt skal að, að þriggja ára áætlun liggi fyrir á næsta fundi hafnarstjórnar.
5. Önnur mál.
Hafnarstjóra falið að gera úttekt á tryggingarmálum hafnarinnar og hafa upplýsingar tiltækar fyrir næsta fund.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.25
Ragnheiður Hákonardóttir, formaður.
Sigurður Þórisson, ritari. Sigurður Hafberg.
Jóhann Bjarnason. Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri.