Barnaverndarnefnd

65. fundur

Árið 2006, fimmtudaginn 9. febrúar kl. 09:30 hélt barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum fund í fundarsal bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Mætt voru: Laufey Jónsdóttir, formaður, Björn Jóhannesson, Védís Geirsdóttir, Helga Sigurjónsdóttir og Kristrún Hermannsdóttir. Auk þess sátu fundinn Ingibjörg María Guðmundsdóttir, Anna V. Einarsdóttir og Margrét Geirsdóttir, starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar.
Fundarritari: Margrét Geirsdóttir.

1. Trúnaðarmál.

Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók barnaverndarnefndar.

2. 112 dagurinn.

Lögð fram til kynningar áætlun um símanúmerið 112, skipulag og aðgerðir á 112 deginum 2006, sem verður 11. febrúar nk. Áætlun þessi var lögð fram á samráðsfundi í dómsmálaráðuneytinu 15. desember 2005.

3. Sískráning fyrir janúar 2006. 2006-02-0038.

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir sískráningu barnaverndarmála á norðanverðum Vestfjörðum í janúar 2006. Í mánuðinum komu 9 tilkynningar til barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum.

4. Upplýsingaskýrslur barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum fyrir árið 2005.

Lögð fram til kynningar skýrsla yfir meðferð barnaverndarmála á Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar á árinu 2005.

5. Endurskoðun á umboði Barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum til starfsmanna og verklagsreglum í barnavernd.

Rætt um hvernig til hafi tekist með umboðsreglur þær sem samþykktar voru síðastliðið haust og samþykkt var að endurskoðaðar yrðu nú í febrúar. Í ljósi góðrar reynslu samþykkir Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum umboðsreglurnar óbreyttar.
Jafnframt var rætt um verklagsreglur í barnavernd og samþykktar breytingar á þeim í samræmi við tillögur þar að lútandi.

Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11:30.

 

Laufey Jónsdóttir, formaður.

Björn Jóhannesson. Védís Geirsdóttir.

Helga Sigurjónsdóttir. Kristrún Hermannsdóttir.

Ingibjörg María Guðmundsdóttir. Anna V. Einarsdóttir.

Margrét Geirsdóttir.