Atvinnumálanefnd

43. fundur

 

Árið 2004, miðvikudaginn 24. mars kl. 17:00 hélt atvinnumálanefnd Ísafjarðarbæjar fund á skrifstofu Ísafjarðarbæjar.
Mættir: Elías Guðmundsson, formaður, Kristján G. Jóhannsson , Gísli H. Halldórsson, Magnús Reynir Guðmundsson og Rúnar Óli Karlsson, ritari. Björn Davíðsson mætti ekki. Varamaður mætti ekki í hans stað.

Þetta var gert:

1. Frumkvöðull ársins 2003.

Atvinnumálanefnd ákvað hver skyldi kosinn frumkvöðull ársins 2003. Nafni þess aðila verður haldið leyndu að sinni.

2. Tækifæri í ferðaþjónustu.

Ný tækifæri í ferðaþjónustu rædd. Rúnari Óla Karlssyni falið að vinna að málinu.

3. Frumkvöðlasetur.

Rætt um frumkvöðlasetur og hvernig hægt væri að koma því verkefni í framkvæmd. Rúnari falið að vinna að málinu.

4. Eftirlitsþjónusta fyrir skip og báta.

Með nýjum reglum varðandi eftirlit skipa, óskar atvinnumálanefnd eftir því að Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða leiði hagsmunaaðila saman til að hvetja nýja rekstraraðila til að hafa hér staðsetta eftirlitsmenn.

 

Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 18:30

Elías Guðmundsson, formaður.

Kristján G. Jóhannsson. Gísli H. Halldórsson.

Magnús Reynir Guðmundsson. Rúnar Óli Karlsson, atvinnu- og ferðamálafulltrúi.

 

 

 

.