Íþrótta- og leikjanámskeið HSV sumarið 2022

Íþrótta- og leikjanámskeið HSV hefst 08. júní nk.

Námskeiðin verða fjögur talsins og eru fyrir öll börn fædd 2012-2015.

Námskeiðin verða á eftirfarandi dögum:

8.-10. júní → Verð 3000 krónur (3 dagar).

13.-16. júní → Verð 4000 krónur (4 dagar).

20.-23. júní → Verð 4000 krónur (4 dagar).

27.- 30. júní → Verð 4000 krónur (4 dagar).

Skráning og greiðsla fer fram á Sportabler | Vefverslun

Skrá þarf iðkendur á þær vikur sem taka á þátt í. Dagskrá hverrar viku er mismunandi.

Námskeiðin eru alla virka daga frá kl. 9-12. Krakkarnir geta fengið vistun frá kl. 8:30 án skipulagðrar dagskrár. Umsjón með námskeiðunum hefur Heiðar Birnir yfirþjálfari íþróttaskóla HSV.

Leikjanámskeiðin verða með sama sniði og á síðasta ári. Um er að ræða hefðbundið námskeið fyrir börn í 1.-2. bekk þ.e. farið verður í leiki, fjöruferðir, hjólaferðir, fjallgöngur, sund, ýmsar íþróttagreinar prófaðar og margt fleira. Mæting fyrir 1.-2. bekk og er við íþróttahúsið á Torfnesi.

Fyrir börn í 3.-4. bekk verður önnur dagskrá. Í fyrsta vikunni verða sundæfingar og almennar íþróttaæfingar. Í viku tvö verða hjólreiðar. Í viku þrjú verður golfnámskeið og í viku fjögur verður hefðbundin dagskrá.

Ýmsir þjálfarar munu koma að þessum þætti námskeiðsins.

Á öllum námskeiðunum er nesti borðað um miðjan morgun og koma allir með hollt og gott nesti að heiman.

Rétt er að taka fram að öll börn eru velkomin á íþrótta- og leikjanámskeið HSV, búseta á starfssvæði HSV er ekki skilyrði. Nánari upplýsingar veitir Heiðar Birnir á netfanginu ithrottaskoli@hsv.is

Er hægt að bæta efnið á síðunni?