Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar – Yfirflokkstjóri

Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir yfirflokkstjóra. Vinnuskólinn er útiskóli sem í sumar hefur aðsetur í Fjarðarstræti og Sundhöllinni, Austurvegi 9. Um er að ræða 100% starf frá byrjun júní til 4. ágúst. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2023. Fyrirhugað er að yfirflokkstjóri mun sitja sérstakt námskeið fyrir flokkstjóra hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða áður en viðkomandi hefur störf.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

Yfirflokkstjóri starfar undir stjórn sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs. Hann er framvörður í sumarstarfi Vinnuskólans og stjórnar og samræmir vinnu leiðbeinenda sem hann hefur umsjón með. Yfirflokkstjóri skilar greinargerð um sumarstarfið og ber ábyrgð á öllum skilum leiðbeinenda um nemendur, þ.m.t. launaskýrslum til launafulltrúa.

Hæfniskröfur:

Yfirflokkstjóri þarf að hafa lokið framhaldsskólamenntun, vera orðinn tuttugu ára og er reynsla af vinnu með unglingum æskileg. Hann þarf að hafa stjórnunarhæfileika, drifkraft, samskipta- og skipulagsfærni og góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti. Yfirflokkstjóri verður að vera leiðbeinendum sínum góð fyrirmynd og hafa skýra framsetningu. Bílpróf er skilyrði.

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við VerkVest/Kjöl.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva María Einarsdóttir í síma 450-8059 eða um netfangið evaei@isafjordur.is. Umsóknir með ferilskrá sendist á sama netfang, merktar „Yfirflokkstjóri“.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?