Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar - Almennur flokkstjóri

Vinnuskóli Ísafjarðarbæjar er útiskóli þar sem starfið gefur einstaka möguleika á að njóta útivistar og eiga þátt í að prýða umhverfið í Ísafjarðarbæ. Óskað er eftir ábyrgðarfullum einstaklingum til starfa á Ísafirði, Suðureyri og Þingeyri. Fyrirhugað er að flokkstjórar muni sitja sérstakt námskeið fyrir flokkstjóra hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða áður en viðkomandi hefja störf. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun júní 2023 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% störf til 4. ágúst. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2023.

Helstu verkefni og ábyrgð: Flokkstjóri starfar undir stjórn yfirflokkstjóra. Hann stjórnar starfi vinnuskólahóps, kennir nemendum rétt vinnubrögð, vinnur með liðsheild og verkvit, er uppbyggilegur og góð fyrirmynd. Flokkstjóri ber ábyrgð á tímaskýrslum og skilum á vinnuskólamati um nemendur.

Hæfniskröfur: Þarf að vera orðinn tuttugu ára. Hann þarf að vera nemendum fyrirmynd í heilbrigðum lífsstíl og vera góður í mannlegum samskiptum. Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Flokkstjóri þarf að hafa bílpróf.

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við VerkVest/Kjöl.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva María Einarsdóttir í síma 450-8059 eða um netfangið evaei@isafjordur.is. Umsóknir með ferilskrá sendist á sama netfang merktar „Almennur flokkstjóri“.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?