Vesturferðir – Leiðsögumenn fyrir sumarið

Vesturferðir leita að leiðsögumönnum fyrir sumarið!

Langar þig að nýta þekkingu þína á þeim erlendu tungumálum sem þú talar? Hefur þú gaman af því að segja frá og tala um þitt heimasvæði?

Okkur vantar fólk til að vera með okkur í sumar til að leiðsegja á ensku, þýsku, frönsku og jafnvel spænsku, í ferðum okkar fyrir skemmtiferðaskipafarþega.

Ef þú hefur áhuga, þá endilega komdu við á skrifstofu okkar á Aðalstræti 7 (Edinborgarhúsið, sunnanmegin), eða sendu okkur línu á gudmundur@vesturferdir.is.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?