Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar – Starfsmaður í stuðningsþjónustu
Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar starf í stuðningsþjónustu á Ísafirði. Um er að ræða 40% starf á dagvinnutíma. Æskilegast er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Stuðningsþjónustan hefur það að markmiði að efla einstaklinga til sjálfsbjargar og gera þeim kleift að búa sem lengst á eigin heimili, við sem eðlilegastar aðstæður.
Helstu verkefni
- Þrif á heimilum þjónustuþega skv. Vinnuleiðbeiningum
- Félagslegur stuðningur
- Ýmis aðstoð við heimilisstörf skv. Vinnuleiðbeiningum
- Samskipti við þjónustuþega
- Aðstoð við innkaup/erindarekstur
Hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Samviskusemi og stundvísi
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Frumkvæði og þolinmæði
- Góð íslenskukunnátta
- Bílpróf
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjölur/VerkVest).
Umsóknarfrestur er til og með 3. október 2022. Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á netfangið johannakr@isafjordur.is .
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Maggý Kristjánsdóttir, forstöðumaður stuðningsþjónustu í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang.
Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-