Umhverfisstofnun – Sérfræðingur í teymi loftgæða og losunarheimilda

Umhverfisstofnun auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í teymi loftgæða og losunarheimilda.

Megin verkefni sérfræðings felast í vinnu við viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda vegna losunar frá flugi og staðbundnum iðnaði, auk tengdra verkefna sem falla undir kerfið. Í boði er krefjandi starf í frjóu umhverfi sérfræðinga þar sem áhersla er lögð á framsýni, samstarf og árangur í þverfaglegri teymisvinnu. Mikil samskipti eru við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Samskipti við og upplýsingagjöf til rekstraraðila, flugrekenda, stjórnvalda og systurstofnana vegna losunar gróðurhúsalofttegunda
  • Yfirferð og utanumhald gagna frá rekstraraðilum og flugrekendum vegna losunar ETS-kerfisins og CORSIA
  • Stjórnsýsluverkefni
  • Þátttaka í sérfræðihópum á vegum ESB
  • Útreikningar vegna úthlutunar losunarheimilda

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem náttúruvísindi eða verkfræði
  • Þekking á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir er kostur
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Þekking á EES gerðum og Evrópusamvinnu er kostur
  • Gagnalæsi og færni í Excel er mikill kostur
  • Góð samstarfshæfni og vilji til að vinna í teymi
  • Gott vald á framsetningu efnis á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
  • Frumkvæði og skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfsaðstaða sérfræðingsins getur verið í Reykjavík, Hellissandi, Patreksfirði, Ísafirði, Akureyri, Mývatni, Egilsstöðum, Hellu eða Vestmannaeyjum; allt eftir búsetu.

Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir við ráðningu. Æskilegt er að sérfræðingurinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Sjá nánari upplýsingar um Umhverfisstofnun á umhverfisstofnun.is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.11.2021

Nánari upplýsingar veitir

Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir - birnag@umhverfisstofnun.is - 5912000
Þóra Margrét Pálsdóttir Briem - thoram@ust.is - 5912000

Smelltu hér til að sækja um starfið

Er hægt að bæta efnið á síðunni?