Sumarstarf í stuðningsþjónustu

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar sumarstarf í stuðningsþjónustu. Um er að ræða 100% starf á dagvinnutíma. Starfið er frá byrjun júní til loka ágúst 2023 eða eftir nánara samkomulagi. Starfið er afar fjölbreytt og gefandi.

Helstu verkefni

  • Félagslegur stuðningur
  • Samskipti við þjónustuþega
  • Aðstoð við innkaup/erindrekstur
  • Ýmis aðstoð við heimilisstörf skv. vinnuleiðbeiningum
  • Aðstoð við þrif á heimilum þjónustuþega skv. vinnuleiðbeiningum

Hæfniskröfur

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Samviskusemi og stundvísi
  • Áhugi á að vinna með fólki
  • Reynsla af umönnun er kostur
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og þolinmæði
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Bílpróf

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).

Umsóknarfrestur er til og með 27. mars 2023. Umsóknum skal skilað til Hrafnhildar Hrannar Óðinsdóttur á netfangið hrafnhildurod@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.

Nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir, forstöðumaður stuðningsþjónustu í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?