Sölumaður í verslun – Húsasmiðjan Ísafirði

Viltu þú vera með okkur í liði?

 

Hefur þú áhuga á starfa með skemmtilegum hóp, í líflegu umhverfi, þar sem eru mikil samskipti og við fjölbreytt og skemmtileg verkefni? Ef svo er, þá gæti þetta verið starfið fyrir þig.

 

Við leitum að duglegum og hressum einstaklingi til þess að bætast í hópinn í verslun okkar á Ísafirði. Við leggjum ríka áherslu á jákvætt hugarfar og metnað fyrir því að veita viðskiptavinum okkar frábæra þjónustu. Helstu verkefni fela í sér ráðgjöf, sölu og þjónustu við viðskiptavini ásamt öðrum tilfallandi verslunarstörfum.

 

Starfshlutfall getur verið á bilinu 60-100% og vinnutími sveigjanlegur, en miðast þó frekar við eftir hádegi.

 

Hæfniskröfur:

  • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
  • Sterk öryggisvitund
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega. Hvetjum alla til að sækja um óháð kyni.

 

Nánari upplýsingar um starfið gefur rekstrarstjóri verslunarinnar, Haraldur Júlíusson á halli@husa.is  

Við leggjum ríka áherslu á liðsheild og góð samskipti og í Húsasmiðjunni ríkir skemmtilegur og líflegur starfsandi. Gildin okkar eru: Áreiðanleiki – Þjónustulund – Þekking

 

Umsóknarfrestur til 20.09.2021

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?