Ræsting – Leikskólinn Sólborg
Leikskólinn Sólborg auglýsir laust til umsóknar starf í ræstingu í leikskólanum. Um er að ræða tímamælda ákvæðisvinnu (2 klst. og 45 mínútur á dag). Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 16. janúar 2023 eða eftir nánara samkomulagi.
Hæfniskröfur
- Dugnaður og vinnusemi
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Nákvæmni og vandvirkni
- Reynsla af ræstistörfum kostur
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Kjöl/VerkVest.
Umsóknarfrestur er til og með 30.12.2022. Umsóknir skulu sendar til Helgu Bjarkar Jóhannsdóttur leikskólastjóra á netfangið solborg@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Helga Björk, í síma 450-8285 / 848-2097 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.
Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-