Menntaskólinn á Ísafirði – Framhaldsskólakennari í viðskiptagreinum

Menntaskólinn á Ísafirði leitar eftir kennara til að viðskiptagreinar fyrir iðnmeistaranema frá og með næsta skólaári. Starfshlutfall er um 80%. Menntaskólinn á Ísafirði er framsækinn framhaldsskóli á Vestfjörðum. Skólinn hefur sett sér stefnu um leiðsagnarnám og fjölbreytta kennsluhætti. Skólinn notar Innu upplýsingarkerfi, námsvefinn Moodle og Teams hópvinnukerfi. námsvefinn Moodle. Kennari viðskiptagreina vinnur sjálfstætt að kennslu með stuðningi öflugs teymis kennslusviðs félagsvísinda við skólann og vinnur að umbótum í skólastarfi í samstarfi við annað starfsfólk skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennari viðskiptagreina starfar eftir starfslýsingu kennara sem er ítarlega skilgreind í gæðahandbók á heimasíðu skólans, www.misa.is. Helstu verkefni eru: Kennsla áfanga í viðskiptagreinum en á haustönn 2021 verða þessir kenndir:
    • Bókhald MBÓK4MS03AA 3 ein
    • Launa- og verkbókhald MBÓK4MS02AA 2 ein
    • Rekstrarfræði MREK4MS03AA 3 ein
    • Mannauðsstjórnun MMAN4MS02AA 2 ein
    • Stofnun og stefnumótun fyrirtækis 2 ein
    • Sölu- og markaðsmál MSÖL4MS02AA 2 ein
    • Lokaverkefni A-hluta 2 MLOK4MS02AA 2 ein
  • Að skapa hvetjandi námsumhverfi fyrir nemendur
  • Þátttaka í faglegu starfi og starfsþróun með stöðugar umbætur í skólastarfi að leiðarljósi

Hæfniskröfur

  • Kennari skal uppfylla kröfur um hæfni og menntun kennara sem kveðið er á um í lögum nr. 95/2019 og hafa leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari. Hann skal hafa víðtæka þekkingu og reynslu á þeim fögum sem hann kennir.
  • Reynsla af kennslu eða starfstengdri leiðsögn er æskileg. Kennari skal hafa skipulagshæfileika, drifkraft og frumkvæði til að leysa vel þau verkefni sem falla undir starfið. Kennari skal vera hæfur í mannlegum samskiptum og hann skal sýna jákvæða framkomu og viðmót gagnvart nemendum og samstarfsfólki.

Frekari upplýsingar um starfið

Kennsla fer fram á staðnum eitt kvöld í viku frá kl. 18-21. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem ríkið hefur gert við félag framhaldsskólakennara og stofnanasamningi MÍ. Í boði er einstaklingsíbúð á heimavist sem er áföst við bóknámshús skólans. Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Umsækjendur þurfa að hafa hreina sakaskrá. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt stuttu kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið. Einnig skulu fylgja leyfisbréf og prófskírteini. Tilgreina skal meðmælendur. Umsóknir skulu berast til skólameistara í netfangið jon@misa.is. og afrit á aðstoðarskólameistara hildur@misa.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Umsóknarfrestur er til og með 23. júní 2021.

Nánari upplýsingar veitir

Jón Reynir Sigurvinsson skólameistari - jon@misa.is – 4504400, 896-4636 Hildur Halldórsdóttir aðstoðarskólameistari – hildur@misa.is - 4504400

Er hægt að bæta efnið á síðunni?