Matvælastofnun – Sérgreinadýralæknir/Fagsviðsstjóri aukaafurða dýra

Matvælastofnun óskar eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan einstakling í starf sérgreindýralæknis/fagsviðsstjóra aukaafurða dýra. Um fullt starf er að ræða á aðalskrifstofu stofnunarinnar á Selfossi eða annarri starfstöð stofnunarinnar utan höfuðborgarsvæðisins. Aukaafurðir dýra ná til allra dýraafurða sem eru ekki ætlaðar til manneldis, t.d slátur- og fiskafskurður, húðir, gærur, dúnn, búfjáráburður og margt fleira. Starfsmaðurinn verður í teymi samstarfsmanna um aukaafurðir dýra og fóður.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning á framkvæmd löggjafar um aukaafurðir dýra
  • Samræming eftirlits með söfnun, geymslu, vinnslu, merkingum og dreifingu aukaafurða dýra
  • Samræming eftirlits með meðhöndlun og förgun dýrahræja
  • Úrvinnsla niðurstaðna eftirlits með aukaafurðum dýra
  • Samskipti við innlendar og erlendar stofnanir varðandi málaflokkinn
  • Vinna að smitvörnum vegna dýrasjúkdóma í samvinnu við aðra sérfræðinga stofnunarinnar í tengslum við málaflokkinn
  • Fylgjast með löggjöf og þróun á sínu starfssviði, þ.m.t. erlendu samstarfi
  • Upplýsinga- og gagnaöflun ásamt skýrslugerð
  • Fræðsla og upplýsingagjöf innan og utan stofnunar

Hæfniskröfur

  • Dýralæknir eða önnur sértæk háskólamenntun á sviði raungreina sem nýtist í starfi.
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Skipulags- og samskiptahæfileikar
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Gott vald á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Dýralæknafélag Íslands hafa gert.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.03.2023

Nánari upplýsingar veitir

Þorvaldur H Þórðarson, sviðsstjóri - thorvaldur.thordarson@mast.is - 5304800

Smelltu hér til að sækja um starfið

Er hægt að bæta efnið á síðunni?