Lyfja Ísafirði – Sala og þjónusta

Lyfja leitar að starfsmanni í verslun sína á Ísafirði.

Um er að ræða tímabundið starf við sölu og þjónustu fram til áramóta. Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund, vera jákvæður og kurteis.

Helstu verkefni:

  • Almenn afgreiðslustörf
  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Afgreiðsla á kassa
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra

Hæfniskröfur:

  • Rík þjónustulund
  • Áhugi á mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og gott viðmót
  • Geta til að starfa undir álagi
  • Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Allir umsækjendur þurfa að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og vera að minnsta kosti 20 ára.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Þ. Birgisson, lyfsali í s. 456 3009 / jonas@lyfja.is 

Sækja um

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?