Starfsmaður í stuðningsþjónustu
Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir starfsmanni í stuðningsþjónustu. Um er að ræða 50% starf í kvöld- og helgarvinnu með möguleika á auknu starfshlutfalli. Starfið er afar fjölbreytt og gefandi. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni
- Félagslegur stuðningur
- Ýmis aðstoð við heimilisstörf skv. vinnuleiðbeiningum
- Samskipti við þjónustuþega
- Aðstoð við innkaup/erindarekstur
- Þrif á heimilum þjónustuþega skv. vinnuleiðbeiningum
Hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Samviskusemi og stundvísi
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Frumkvæði og þolinmæði
- Góð íslenskukunnátta
- Bílpróf
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2021. Umsóknum skal skilað á netfangið johannakr@isafjordur.is . Með umsókn skal fylgja ferilskrá.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Maggý Kristjánsdóttir, forstöðumaður stuðningsþjónustu í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang.
Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-