Velferðarsvið – Stuðningsfulltrúar í búsetuþjónustu

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir stuðningsfulltrúum í búsetuþjónustu fatlaðs fólks. Um er að ræða 70-100% störf og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Störfin eru afar fjölbreytt og gefandi.

Helstu verkefni

  • Aðstoða þjónustunotendur við athafnir daglegs lífs
  • Félagslegur stuðningur
  • Samskipti við þjónustuþega
  • Framfylgja vinnureglum sem ákveðnar eru og stuðla með því að samræmdum vinnubrögðum

 

Hæfniskröfur

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Samviskusemi og stundvísi
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og þolinmæði
  • Góð íslenskukunnátta
  • Bílpróf

 

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 29. júní 2021. Umsóknir, ásamt ferilskrá, kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum, skulu sendar til Önnu Valgerðar Einarsdóttur, deildarstjóra málefna fatlaðra á velferðarsviði á netfangið anna@isafjordur.is. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Anna Valgerður Einarsdóttir, í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

 

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?