Leikskólinn Sólborg Ísafirði – Leikskólakennari/starfsmaður í leikskóla

Leikskólinn Sólborg á Ísafirði auglýsir laus til umsóknar tvö 100% störf leikskólakennara eða starfsmanna í leikskóla. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf annars vegar 3. janúar og hinsvegar 17. janúar 2022 eða eftir nánara samkomulagi.

Sólborg er fimm deilda leikskóli sem starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia en í skólanum eru um 100 börn. Ein deildin er fimm ára deild sem staðsett er í húsnæði Tónlistarskóla Ísafjarðar. Um er að ræða mjög skemmtileg og gefandi störf í lifandi starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð íslenskukunnátta

Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari og verður þá um tímabundin störf að ræða til eins árs.

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Þess má geta að hjá leikskólum Ísafjarðarbæjar hefur verið gerð vinnustytting um 3 klst á viku miðað við 100% starf.

Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2021. Umsóknir skulu sendar til Helgu Bjarkar Jóhannsdóttur leikskólastjóra á netfangið solborg@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og leyfisbréf. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Helga Björk, í síma 450-8285 / 848-2097 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?