Grunnskólinn á Ísafirði – Þroskaþjálfi

Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir laust til umsóknar 100% starf þroskaþjálfa við skólann frá 1. ágúst 2021. Skólinn er byggður sem einsetinn skóli með um það bil 360 nemendur og fer öll kennsla fram undir sama þaki, utan íþrótta- og sundkennslu. Undanfarin ár hefur skólinn unnið eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og verið þátttakandi í vinaliðaverkefninu.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Samstarfsaðili kennara og annarra starfsmanna
  • Þjálfun og umönnun nemenda með fötlun
  • Gerð einstaklingsáætlana
  • Endurmat
  • Ráðgjöf og leiðbeiningar til starfsfólks og foreldra

 

Menntunar og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf þroskaþjálfa
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskipum
  • Skipulagsfærni og nákvæmni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Samviskusemi, stundvísi og sveigjanleiki
  • Góð íslenskukunnátta

 

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.

Umsóknir skulu sendar til Sveinfríðar Olgu Veturliðadóttir, skólastjóra, á netfangið sveinfridurve@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá, prófskírteini og afrit af leyfisbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2021.

Nánari upplýsingar veitir Sveinfríður í síma 450-8300 eða í gegnum tölvupóst.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

 

-Við þjónum með gleði til gagns-

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?