Velferðarsvið – Stuðningsfulltrúi í búsetuþjónustu

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í búsetuþjónustu fatlaðs fólks. Um er að ræða 50% starf til 31. ágúst 2021 með möguleika á framlengingu. Starfið er afar fjölbreytt og gefandi. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Helstu verkefni

  • Aðstoða þjónustunotendur við athafnir daglegs lífs
  • Félagslegur stuðningur
  • Samskipti við þjónustuþega
  • Framfylgja vinnureglum sem ákveðnar eru og stuðla með því að samræmdum vinnubrögðum

 

Hæfniskröfur

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Samviskusemi og stundvísi
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og þolinmæði
  • Góð íslenskukunnátta
  • Bílpróf

 

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 24. júní 2021. Umsóknum skal skilað á netfangið sigridurjo@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá. 

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Magnea Jónsdóttir, forstöðumaður í búsetu í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

 

-Við þjónum með gleði til gagns-

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?